Mánudagur, 25. mars 2019
Góða fólkið tryggir Trump endurkjör 2020
Samsæriskenningin um að Pútín Rússlandsforseti stæði á bakvið kjör Trump til forseta Bandaríkjanna 2016 er hrunin. Góða fólkið trúði kenningunni eins og nýju neti í þrjú á og batt vonir við að Trump yrði dæmdur frá embætti.
Helstu andstæðingar Trump, Demókrataflokkuirnn og stærstu fjölmiðlar vestan hafs, fá á sig mikið högg þegar fjárfestingin í rússasamsærinu tapast öll. Tiltrú almennings hverfur og var þó ekki úr háum söðli að falla.
Demókratar og fjölmiðlaandstæðingar Trump munu ekki ná vopnum sínum í bráð. Gatan er greið fyrir endurkjör Trump 2020.
Áttu ekki óeðlileg samskipti við Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Maður veltur fyrir sér hvað var eiginlega planið. Þeir hlutu að vita að þetta yrði niðurstaðan. Það er eins og Trump er á bakvið Demókrata þessa dagana, eins og þeir eru að rembast við að sjá til þess að hann nái endurkjöri með því að hegða sér eins og geðsjúklingar á amfetamíni.
Mofi, 25.3.2019 kl. 08:48
Ætli þessi frétt nái inn á fréttastofu RÚV!!!
Sigurður I B Guðmundsson, 25.3.2019 kl. 09:34
http://www.ruv.is/frett/algjor-og-fullkomin-hreinsun-af-ollum-aburdi
?eir munu samt örugglega reyna að gleyma þessu öllu saman á met hraða.
Mofi, 25.3.2019 kl. 09:44
Ég finn ekkert um þetta á visir.is
Mofi, 25.3.2019 kl. 09:47
Vestur í Bandaríkjunum er hreyfing sem kallast WalkAway og hafa margir innan þessarar hreyfingar komið fram á Youtube og lýst því hvernig þeir sáu að þeir ættu ekki lengur samleið með Demókrataflokknum og flestir snúið sér til Repúblikana.
Tómas Ibsen Halldórsson, 25.3.2019 kl. 16:40
Fann smá um þetta á visir: https://www.visir.is/p/trump ekki beint mjög áberandi en samt, eitthvað smá.
Mofi, 25.3.2019 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.