Þriðjudagur, 29. janúar 2019
Rósa B. hissa að menn vinni störf sín
Samfylkingarþingmaður Vinstri grænna, Rósa B. Brynjólfsdóttir, kveðst hissa á að Bergþór Miðflokks skuli stýra þingnefnd þar sem hann er formaður.
,,Þó svo hann hafi tekið setu á þinginu í síðustu viku þá kom þetta virkilega á óvart og enginn fyrirvari á því," segir Rósa B. og er miður sín á tali við RÚV.
Rósa B. er viðkvæm sál og finnst sér ofboðið ef menn rækja störf sín. Alþingi er líklega ekki heppilegasti vinnustaðurinn fyrir snjókorn.
Orðbragðið engu skárra en á Klaustri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú gleymdir að merkja færsluna Páll.
Þessi færsla er kostuð af Wintris og Kögun fyrir hönd Miðflokksins
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.1.2019 kl. 14:14
Góð athugasemd.
Fólk eins og Rósa tala Alþingi niður.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.1.2019 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.