Þriðjudagur, 15. maí 2018
Ungabarn gengur ekki til mótmæla
Átta mánaða hvítvoðungur skreppur ekki á ofbeldismótmæli til að tjá hug sinn. Einhver fullorðinn ákveður að ómálga og ósjálfbjarga barn skuli sett í lífshættu og tekur það á vettvang ofbeldisins.
Glæpamaðurinn er sá fullorðni. En íslenskir vinstrimenn þiggja mannfórnir Palestínuaraba til að æsa sig upp í hatrinu á Ísrael.
Samúð með glæpamönnum er ekki hugþekk pólitík.
Táragasið drap ungbarn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta kallast Páll að snúa hlutunum á hvolf. Maður sem mótmælir ólöglegri landtöku og heldur á barni er þá sá seki en ekki sá sem skýtur byssukúlum á óvopnaða mótmælendur. Og ef við höldum áfram að þá er ég gyðingahatari og hef samúð með glæpamönnum fyrir að skrifa þessi orð.
Baldinn, 15.5.2018 kl. 16:25
Það er ekki svo langt síðan hér var allt á hvolfi yfir að foreldrar leyfðu umskurð á ungabörnum. Gott ef ekki átti að liggja 6 ára refsidómur við athæfinu.
Nú þykir hið besta mál að börn séu borin á vígvöll af foreldrum þar sem blóðug átök eiga sér stað og þá er sagt að þeir sem engan hlut eiga að flutningi þessara barna séu sekir um morð. Það er yfirlýst stefna Hamas að rjúfa landamærin við Ísrael svo þeir komist í betra færi við að slátra Ísraelum. Til þess erfólk hhvatt til að mæta með börn sín á átakasvæðið svo nóta megi dauða þeirra áróðursskyni.
Mér sýnist afstæðishyggja ríða hér húsum í þessu máli.
Ragnhildur Kolka, 15.5.2018 kl. 16:53
Baldinn, grjót og bensínsprengjur VORU notuð sem vopn og því tómt mál að tala um að skotið hafi verið á "óvopnaða" mótmælendur.....
Jóhann Elíasson, 16.5.2018 kl. 08:32
Jóhann. Að svara grjótkasti með byssukúlum er harla ójafn leikur enda er mannfallið allt Palistínumenn. Af myndum að dæma voru þetta unglingar að kasta grjóti. Svo kallar þú þetta " bensínsprengjur ". Þegar taustykki er látið ofan í flösku með bensíni í. Þetta er ykkar réttlæting á að tugir manna eru skotnir með byssukúlum. Einhverntíman var það kallað " mannvonska ".
Baldinn, 16.5.2018 kl. 09:52
Það er nokkuð ljóst "Baldinn", að þú ert með RÖRSÝN í þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Það er rétt hjá þér að byssukúlur á móti grjótkasti er ójafn leikur en vopn er grjótið engu að síður og alveg er sá leikur "Vinstri Hjarðarinnar", að reyna að gera lítið úr allri VILLIMENNSKUNNI hjá Palestínumönnum og helst að líta framhjá henni. Og meira að segja koma vissir aðilar fram og segja að Ísraelsmenn skjóti á "friðsama vopnlausa mótmælendur".... ÉG HEF BARA ALDREI SÉÐ NEITT FRIÐSAMT Í MÓTMÆLUM PALESTÍNUMANNA.......
Jóhann Elíasson, 16.5.2018 kl. 11:45
Sæll Páll
Eftir því sem að þú segir hérna, þá má þetta fólk og börn þeirra alls ekki mótmæla Zíonista Ísrael, því ber að skjóta það strax án þess að nota gúmkúlur eða viðvaranir, ekki satt? Einnig getið örugglega líka réttlæt allt saman fyrir Zíonista Ísrael með hafa myrt fatlaðan og fótalausan einstakling í hjólastól, því það er Zíonista Ísrael sem skiptir svo miklu meira máli hjá ykkur, ekki rétt?
Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 16.5.2018 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.