Kynjað atvinnulíf: konur ekki í flugvirkjun, karlar ekki í hjúkrun

Aðeins fjórar konur eru í 560 manna stéttarfélagi flugvirkja. Karlar fara ekki í hjúkrun, jafnvel þótt reynt sé að kaupa þá til þess. Aftur yfirtaka konur kennslu í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Konur eru 80 prósent kennara.

Menntun og störf fólks eru valfrjáls. Með frjálsu vali einstaklinga verða til kvennastéttir og karlastéttir en vitanlega einnig blandaðar starfsstéttir beggja kynja. Ekki er hægt að tala um mismunun í þessu samhengi eða ,,glerþak". Fólk velur sér störf sem einstaklingar en ekki hópsálir.

Opin spurning er hvort og þá í hve miklum mæli ríkisvaldið ætti að skipta sér af niðurstöðu sem verður til við frjálst val. Einna helst kæmi það til greina í skólamálum.

Ef drengir fá aðeins kvenkynskennara er hætt við að þeir, stúlkur raunar líka, fái þá ranghugmynd að menntun sé aðeins fyrir annað kynið. Þá er augljóst að mæðrahyggja, að ekki sé talað um mæðraveldi, verði ráðandi í skólastarfi. Hvorki stúlkum né drengjum yrði það hollt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband