Sunnudagur, 1. apríl 2018
Trump, Pútín og nýríkir auðmenn
Jeff Bezos er nýríkur auðmaður með pólitískan metnað. Hann stofnaði Amazon og kaupir sér pólitísk völd í gegnum Washington Post. Trump forseti snýst gegn Bezos og gagnrýnir hann fyrir skattaundanskot.
Um aldamótin var Mikhail Khodorkovsky mestur auðmanna í Rússlandi. Líkt og aðrir auðmenn þar í landi var féþúfa Khodorkovsky ríkiseigur sem seldar voru á tombóluprís til útvaldra árin eftir hrun Sovétríkjanna. Khodorkovsky var einnig með pólitískan metnað, gaf til kynna að hann yrði forsetaframbjóðandi 2008. En aldamótaárið sjálft var Pútín forseti kominn á vettvang og gerði Khodorkovsky að blóraböggli fyrir spillt auðræði í Rússlandi.
Pólitískt kjörnir forsetar hafa það sem auðmenn skortir, umboð kjósenda til að standa vörð um almannahagsmuni. Trump er ekki með þau tök á ríkisvaldinu í Bandaríkjunum sem Pútin hefur í Rússlandi. Bezos er að því leytinu í betri stöðu en Khodorkovsky.
Trump ræðst gegn Amazon á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.