Píratar dreifa falsfréttum í útlöndum

Smári McCarty þingmaður Pírata dreifir óhróðri um Ísland í útlöndum. Smári reyndi að koma því inn hjá erlendum fjölmiðlum að barnaníðingar sætu í æðstu stjórn landsins.

Píratar vonast til að erlendir miðlar taki upp falsfréttirnar og að þær verði síðan þýddar yfir í íslenska fjölmiðla.

Markmiðið er að þjóðin fyllist sjálfsfyrirlitningu og kjósi Pírata.


mbl.is Forstjóri Landsvirkjunar í falsfréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Smári er aðeins hálfdrættingur í skítmokstrinum miðað við þessa nafnlausu hægri menn sem bera út alvöru rógburð um saklaust fólk sem hefur ekkert til saka unnið annað en vera rógberunum ósammála.  Ég er að tala um nafnleysingjana sem fela sig bak við nöfn eins og staksteinar í Morgunblaðinu, Óðinn, Týr,Huginn og Muninn í Viðskiptablaðinu, Kaffistofan á Pressunni, Orðið á götunni á Pressunni og sá alversti af öllum ómerkilegum nafnleysingjum, Smáfuglarnir á amx.is (Óli Björn Kárason) Sameiginlegt með þeim öllum eru ærumeiðingar í formi rógburðar sem erfitt er að bera af sér. Rógurinn um Sigmund Davíð er af öðrum toga. Þar hefur Kári Stefánsson helst haft sig í frammi en hann er þó ekki að vega að mönnum í skjóli nafnleyndar ekki frekar en Smári McCarthy.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 19.10.2017 kl. 16:18

2 Smámynd: Réttsýni

Fátt er nú falskara en þinn áróður Páll. Þú grípur hvert tækifæri til að ljúga upp á fólk eins og þú fáir borgað fyrir það. En sennilega FÆRÐU einmitt borgað fyrir það. Sjálfstæðisflokkurinn sér jú um sína, en lægra verður ekki lotið í forina.

Réttsýni, 19.10.2017 kl. 16:37

3 identicon

Lygar og rógburður hefur alltaf verið landlægt vandamál, augljóslega ekkert breitst.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.10.2017 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband