Þriðjudagur, 19. september 2017
Alþingi brást, þingmenn sitja áfram
Þingheimur brást þjóðinni með því að setja ekki saman starfhæfa ríkisstjórn. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru þeir einu sem stóðu sig í stykkinu, lögðu sig fram um að setja saman ríkisstjórn.
Kostulegt er að heyra að nærfellt allir þingmenn smáflokkanna leyfa sér kinnroðalaust að sækjast eftir endurkjöri. Þar örlar ekki á sjálfsgagnrýni, hvað þá að þeir axli ábyrgð.
Þingmenn smáflokkanna eru eins og litlir Neróar, kveikja bál og brenna lýðveldið, en þiggja á meðan opinber laun fyrir þægilega innivinnu.
Tvær gefa ekki kost á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.