Múslímatrú elur af sér hryðjuverk - ný rannsókn

Ný rannsókn kemst að þeirri niðurstöðu að trúin sé miðlæg í réttlætingu múslímskra glæpamanna á verkum sínum. Rannsóknin er gerð í Austurríki og byggir á viðtölum við 29 dæmda múslíma.

Til skamms tíma var talið að slæmar félagslegar aðstæður s.s. fátækt og atvinnuleysi skýrðu tilurð herskárra múslíma fremur en trúin sjálf. En rannsóknin sýnir að múslímsku glæpamennirnir fundu í trúnni sannfæringu og réttlætingu fyrir athöfnum sínum. Stærsti hluti múslímsku afbrotamannanna komu frá trúuðum heimilum og þekktu vel til helgirita múslíma.

Með þennan trúarbakgrunn og boðskap róttækra múslímapresta sannfærðust afbrotamennirnir að veraldlegt vestrænt samfélag væri óvinur sannra múslíma.

Sannir múslímar sækja sem sagt trúarlegan innblástur í hryðjuverk á hendur saklausra borgara á vesturlöndum.

Stóra spurningin er þessi: hverjir eru sannir múslímar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég vil enga múslima á íslandi; ekki 1.

Allir flokkarnir á alþingi virðast vera föðurlands-svikarar, lúta múslimum og vilja leyfa nýja mosku í Skógarhlíðinni án þess að depla auga.

Mætti þá ekki segja að ég sé hvítu megin á skákborðinu

en alþingi sé svörtu-megin á skákborði lífsins

Jón Þórhallsson, 5.8.2017 kl. 18:11

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Páll. Ég hef oft sagt það áður og segi það hér aftur: trúarbrögð eru mér í raun alveg óskiljanleg.

Enginn getur með réttu trúað á ábyrgan hátt á neitt annað en sína meðfæddu hjartans trú. Trúarbragðaáróður skaðar alla frelsisins hjartans trú hvers og eins á jörðinni.

Stríðsáróður trúarbragða er óverjandi og frelsis sviptandi fyrir alla einstaklinga á jörðinni.

Ég tek ekki þátt í skilgreindum trúarbragða áróðri af nokkru tagi.

Almættið algóða og trúarbragðahlutlausa, alvitra og algóða er mitt umbeðna leiðbeiningar veganesti. Án allra valdníðslu stríðsöfgatrúarbragða-áróðurs!

Ég er þakklát fyrir mína óháðu trú á hið nafnlausa og góða í veröldinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.8.2017 kl. 20:56

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott Anna Sigríður þá ertu alls óhult fyrir frelsissviptingu,almættið bænheyrir þig.

Helga Kristjánsdóttir, 5.8.2017 kl. 21:23

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fólk þarf alltaf að gera greinarmun á KRISTINNI TRÚ og múslima trú.

Hugsanlega gæti það verið sáluhjálpar-atriði að trúa rétt eins og hér er sýnt:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/category/2293/

Jón Þórhallsson, 5.8.2017 kl. 21:46

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Helga mín. Ég veit að ég get aldrei orðið annað en hjartans eigin almættisins ferðalangur, og fáfræðingur á jörðinni. Frelsið er ekki án ábyrgðar, og ég tek því sem ég á skilið vegna vanrækslu minnar og skilningsleysis gagnvart öðrum í gegnum lífið.

Enginn er í raun óhultur í lífinu á jörðinni, og það veit ég vel.

Trúarbrögð eru ekki réttlætanleg í pólitískum áróðri, né í nokkrum öðrum tilgangi.

Ég fer þá leið sem mér er í stóru myndinni ætlað, hvort sem ég skil það núna eða ekki. Sama hvað mér raunverulega finnst. Ég vil öllum allt það besta í friði á jörðu. En ég ræð engu nema sjálfri mér. Svo valdið er sem betur fer takmarkað hjá henni fáfróðu mér einni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.8.2017 kl. 21:47

6 Smámynd: Halldór Jónsson

veri þeir allir sem fjarst okkur.

Halldór Jónsson, 5.8.2017 kl. 23:03

7 Smámynd: Halldór Jónsson

 En þeir vilja samt vera sem næst okkur sem þeir svo hata.

Halldór Jónsson, 5.8.2017 kl. 23:03

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Það er undarlegt, þetta trúarbragðanna toppstjóranna ferðalag, að þurfa skilgreind trúarbrögð til að réttlæta ólíkar gjörðir sínar og tilveru hér á jörðu.

Ég skil ekki þannig áróðurspólitík af nokkurri trúarbragðategund?

Undarlegt að vilja vera nálægt trúarbrögðum sem viðkomandi hatar?

Hver er tilgangurinn í raun og veru?

Enginn hefur útskýrt það fyrir almenningi, og öllum hlutlausum í einka frelsistrúnni?

Það virðist búa einhverskonar heimsveldisofbeldi á bak við trúarbrögðin óskiljanlegu? 

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.8.2017 kl. 23:44

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Reyndu ekki að tala um "heimsveldisofbeldi" í sambandi við kristindóm. En múslimar breiddu út sitt islam með sverði og ofbeldi, og þeir öfgamúslimsku halda áfram að beita skæðu ofbeldi í sína þágu, jafnvel fjöldamorðsaðgerðum gegn blásaklausum almenningi. Blindir eru þeir sem sjá ekki, að þetta er eins hvítt og svart í samanburði.

Jón Valur Jensson, 6.8.2017 kl. 01:41

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jón Valur, Anna Sigríður nefnir það alls ekki,hún talar um trúarbrögðin óskiljanlegu og játar hér (í efri færslum)að hún er fáfróð um þau. Ég veit ekki hvort húner inni ennþá því við erum því miður ekki bloggvinir.M.kveðju.

Helga Kristjánsdóttir, 6.8.2017 kl. 02:12

11 Smámynd: FORNLEIFUR

Ég les ekki þessa fyrirsögn þína út úr greininni sem þú vitnar í. Ertu falsblaðamaður Páll?

FORNLEIFUR, 6.8.2017 kl. 09:37

12 Smámynd: FORNLEIFUR

 Afbrotamenn sem "finna guð" eru ekki sannir múslímar frekar en íslenskir glæpapésar sem finna guð eftir ákveðið magn eiturlyfja og brennivíns. Afbrotamenn sem finna Guð eiga það oft sameiginlegt að þeir kunna ekki almennilega að lesa og eru treggáfaðir og hafa það eftir sem þeir heyra og rugla í sínum greindarskerta haus eftir nokkra pistla frá hatursfullum prestum. Siðblinda spilar einnig inn í.  Mennirnir eru misjafnir og allir eru ekki eins vel gerðir og þú og ég. Því er leitt að sjá þig snúa út úr því sem þú lest á þýsku og haga þér eins og hatursprestarnir sem hræra í hausum "múslímskra" glæpamanna sem ekki rísa hátt andlega.  Þú berð ábyrgð og ætti að vita betur en að alhæfa um "múslímatrú" út frá örvæntingarverkum þeirra sem minna mega sín og hafa ekki skilið mannleg samskipti til fulls. Því miður Páll, þú ert ekki ósvipaður róttækum múslímaprestum í aðferðum þínum.

FORNLEIFUR, 6.8.2017 kl. 09:53

13 Smámynd: FORNLEIFUR

Jón Valur, ertu í algjörri afneitun? Veistu ekki enn hvað kaþólsk kirkja hefur afkastað með báli og brandi? Er ekki kominn tími til að þið hverfið með kirkjurnar og klaustrin úr Ísraelsríki og öfgamúslímarnir með ykkur og látið gyðingana vera í friði, gyðingana sem bæði kristnir og múslímar hafa stolið frá, logið um og myrt. Þið skapið ekkert nema blóðsúthellingar með trúarofstækinu og trúarlegum tvískinnungi. Hatur og vænisýki er því miður leiðarljós margra kristinna og múslíma. Þess vegna rífist þið svo mikið um ágæti trúarbragða ykkar. Bæði trúarbrögðin eru vitaskuld stolin og gölluð vara og þörf ykkar til að eyða Gyðingdómi hefur vaxið upp úr vondri samvisku og erfiðleikum við að horfast í augu við sannleikann um copy-paste trú ykkar. Sýnið umburðarlyndi og lærið nú það besta í gyðingdómi í stað þess að lifa áfram í miðaldastælunum. Ekkert er of seint.

FORNLEIFUR, 6.8.2017 kl. 10:03

14 Smámynd: Mofi

Anna, Það er eins og þú mælir gæði trúar í hve margir séu henni sammála og að aðal kosturinn við þína trú er að...enginn annar er sammála þér. Þetta er svakalega skrítið í mínum augum að minnsta kosti. Þú lætur eins og aðal vamdamálið er að fólk með sömu trúar skoðun myndi skipulagðan hóp; ekki hvað hópurinn gerir eins og Rauði krossinn eða Hjálpræðisherinn, nei...bara vandamálið að fólk með svipaðar skoðanir komi saman. 

Mofi, 6.8.2017 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband