Trump og trúarstríð múslíma

Trump heimsótti höfuðríki súnní-múslíma, Sádi-Arabíu, og gerði þar viðskiptasamninga, sem reyndar eru sagðir mest í þykjustunni - falsfréttir. Aðalríki shíta-múslíma er Íran.

Sádar og Íranar heyja staðgenglastríð um völd og áhrif í ríkjum eins og Sýrlandi og Jemen. Bandaríkin styðja Sáda en Rússland Íran.

Hryðjuverkarásin í Teheran, höfuðborg Íran, sem kostaði 13 mannslíf, er skrifuð á reikning Sáda. Ríki íslams er herská hreyfing súnní-múslíma og stendur reglulega fyrir hryðjuverkum á vesturlöndum.

Trúarlegur bakhjarl Ríkis íslam er Sádi-Arabía, trúarríkið þar sem konur eru annars flokks þegnar og opinberar aftökur eru daglegt brauð. Íran er líka trúarríki og stundar opinberar aftökur á samkynhneigðum.

Trúarstríð múslíma frá 1979 er með þeim einkennum að allir sjö forsetar Bandaríkjanna, þar af þrír demókratar (Carter, Clinton og Obama) og fjórir repúblíkanar (Reagan, Bush eldri og yngri, og Trump) styðja Sádi-Arabíu gegn Íran.

Bandaríkjaforsetar koma og fara en trúarstríðið heldur áfram með sama takti.


mbl.is Segir ummæli Trump „viðbjóðsleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband