Múslímar kljúfa Evrópu

Bretar samþykktu úrsögn úr Evrópusambandinu, Brexit, til að koma í veg fyrir að höfuðstöðvar ESB í Brussel gætu ákveðið hve margir múslímar kæmu til Bretlands. Íslamskir stríðsmenn kenna sig við heilagt stríð og þeim fjölgar í réttu hlutfalli við aukningu múslímskra flóttamanna.

Guy Verhofstadt forseti bandalags frjálslyndra á Evrópuþinginu vill dreifa múslímskum flóttamönnum um alla álfuna. Hann boðar aðgerðir gegn Ungverjum og Pólverjum sem leggjast gegn viðtöku flóttamanna. Forsætisráðherra Póllands segir valdaelítuna í Brussel ,,brjálaða" að hleypa verðandi stríðsmönnum heilags stríðs inn í Evrópu.

Austur-Evrópuþjóðir hýsa fáa múslíma. Í Varsjá og Búdapest eru líka fá, ef nokkur, hryðjuverk framin af íslamistum. Hryðjuverkin er framin þar sem músímar búa; Berlín, París og nú síðast í Manchester. Valdhafar í Póllandi og Ungverjalandi njóta stuðnings almennings að bægja frá landamærum sínum tilvonandi hryðjuverkamönnum.

Menningarstríðið milli frjálslyndra múslímavina í Vestur-Evrópu gegn íhaldsmönnum í Austur-Evrópu leysist ekki í fyrirsjáanlegri framtíð.

Og já, vel að merkja, Verhofstadt og þeir frjálslyndu segja Pútín Rússlandsforseta standa að baki íhaldsöflum í Póllandi og Ungverjalandi. Auðvitað.

 


mbl.is Fleiri ganga hugsanlega lausir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband