Fimmtudagur, 25. maí 2017
Maðurinn skapaði sjálfan sig
Guð skapaði manninn var viðkvæðið fram á 19. öld. Þróunin skóp manninn, sagði Darwin fyrir hálfri annarri öld og gaf undir fótinn þeirri hugsun að maðurinn sé afleiðing náttúruvals. Maðurinn sé minnst sjálfur aðili að útkomunni.
Á seinni tímum er kominn fram sá skilningur að maðurinn sé meðvituð afleiðing eigin gjörða. Líffræðingurinn Kevin Laland á 30 ár að baki í viðleitni sinni að sýna fram á að menningin mótaði manninn. Menning, vitanlega, kemur hvorki frá guði né náttúrunni heldur manninum sjálfum.
Í nýrri grein teflir Laland menningunni fram sem meginmismun milli manna og dýra. Menning er hér skilin vítt, sem öll hæfni mannsins til að hafa áhrif á umhverfi sitt. Lykillinn að áhrifum á umhverfið, náttúruna og samfélagi manna, er merking. Ekkert verkfæri til merkingarframleiðslu er betra en tungumálið.
Með merkingarbæru tungumáli er hægt að kenna yngri kynslóðum og þar með hleðst upp menningarauður sem er forsenda fyrir undirbúningi, skipulagi og framkvæmd þeirra verka sem gerði manninn, en ekki aðrar dýrategundir, að húsbónda jarðkringlunnar.
Laland segir menningarauðinn allt að 2,5 milljón ára gamlan. Elstu útgáfur af forföður mannsins eru núna sagðar 7,2 milljónir ára. Darwinistar segja sjálfsagt að náttúruval kom við sögu áður en maðurinn fékk vit til að þróa merkingarbært tungumál. Þeir guðhræddu leita trúlega enn lengra aftur og spyrja um upphaf efnisins; getur eitthvað orðið til úr engu? Var ekki skapari á undan miklahvelli?
En þessi hugmynd, að maðurinn skapaði sjálfan sig, er rökrétt niðurstaða í samtímanum. Við höfnuðum guði og trúin að náttúrulögmál útskýri manninn fer minnkandi. Þá er þetta eftir: maðurinn skóp manninn.
Athugasemdir
Sæll Páll,
Gaman að þessum pælingum en sjálfsköpun er röklegur ógjörningur. Ef maðurinn hefði skapað manninn, þá hefði maðurinn þurft að vera til áður en maðurinn varð til - sem gengur ekki upp. Þetta er þó skynsamara en hugmyndin um tilviljunarkennda og hugsunarlausa þróun, án markmiðs og stefnu. Lokamarkmiðið varð samt maðurinn sem hafði "réttan" skilning á öllu - líka sínu eigin upphafi. Sú fullyrðing krefst einhvers rökstuðnings. Þann rökstuðning hef ég ekki séð.
Ég get tekið undir með þér um tungumálið. Geta mannsins til að bregðast við orðasambandi sem hann þekkir ekki með einhverju nýju, sem er ekki háð hans innra ástandi eða ytri aðstæðum - heldur skapandi getu hugans, er yfirburðar. Ekkert dýr hefur þessa getu, og ekkert dýr hefur nokkra framtíðarsýn sem heitið getur - ekki nálægt því.
Kv.
Valur Arnarson, 25.5.2017 kl. 14:49
En þá verðurðu náttúrulega að upplýsa hver skapaði guð Valur. Er þetta ekki bara sama spurningin og um það hvort kom á undan eggið eða hænan.
Jósef Smári Ásmundsson, 25.5.2017 kl. 15:22
Ef Guð er utan tíma þá hefur hann alltaf verið til og því eilífur. Skapari hans er því ekki nauðsynlegur - nema fyrir þann sem hafnar eilífðinni.
Hver og einn hlýtur samt að svara því fyrir sig hvort Guð sé nauðsynlegur. Alheimurinn hefur stundum verið settur í samhengi við eitthvað sem nefnt hefur verið tilgangur. Ef þannig tilgangur er ekki nauðsynlegur - þá er Guð ekki nauðsynlegur. Ef afleiðing þarf ekki orsök, þá er Guð ekki nauðsynlegur.
Valur Arnarson, 25.5.2017 kl. 15:55
Eilífðin hlýtur að þýða það að alheimurinn hefur alltaf verið til og mun alltaf vera það. Og það þýðir að rúmið er líka óendanlegt. Það þýðir að ekki hefur verið um neina sköpun að ræða.Að sjálfsögðu hafna ég ekki eilífðinni. Takmörkunin er einungis okkar mannanna sem sjá ekki lengra . Ef að ekkert væri til , enginn alheimur, aðeins tómið, Þá væri það væntanlega um alla eilífð.Og enginn myndi gera sér grein fyrir því. Skiljanlega , ekki satt?
Jósef Smári Ásmundsson, 25.5.2017 kl. 19:44
Samkvæmt Miklahvellskenningunni, sem er ein sú viðurkenndasta vísindakenning í dag, þá á alheimurinn sér upphaf einhvertiman í fortíðinni. Menn geta svo mótmælt því.
Valur Arnarson, 25.5.2017 kl. 20:07
Og hvað olli svo þessum " Mikla hvelli" ef ekkert hefur verið til áður?
Jósef Smári Ásmundsson, 25.5.2017 kl. 21:27
Fyrir hvern og einn að svara - fyrir sig.
Valur Arnarson, 26.5.2017 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.