Laugardagur, 25. mars 2017
ESB og fall alþjóðahyggjunnar
Alþjóðahyggju var hafnað í Bretlandi og Bandaríkjunum, með Brexit og Trump. Evrópusambandið var helsta verkfæri alþjóðahyggjunnar ásamt Bandaríkjunum - áður en Trump kom til sögunnar.
Alþjóðahyggja stefnir að regluverki og stofnanaveldi sem stýrir samskiptum á milli þjóða. Innifalið er að þjóðríki framselji fullveldið til yfirþjóðlegs valds. Á móti áttu að koma efnahagslegar framfarir alls almennings. Hornsteinninn þar er frjáls viðskipti.
Hugmyndinni óx fylgi eftir tvær heimsstyrjaldir á síðustu öld. Eftir lok kalda stríðsins fyrir aldarfjórðungi varð alþjóðahyggja ráðandi hugmyndafræði Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.
Hrun Sovétríkjanna virtist sigur vesturlanda. En annað kom á daginn. Frjáls viðskipti eftir fall Sovétríkjanna gerðu Rússland að gjaldþrota spillingarbæli. Pútín reisti við efnahagskerfi Rússlands um síðustu aldamót en gerði það á kostnað frjálsra viðskipta. Eftir að Pútín komst til valda í Rússlandi varð hann óvinur vesturlanda, þ.e. Bandaríkjanna og ESB.
Það var þó ekki Pútín sem felldi alþjóðahyggjuna, enda Rússland ekki heimsveldi eins og Sovétríkin voru. Pútín stendur fyrir sérrússneska þjóðernishyggju sem ekki er hugmyndafræðileg útflutningsvara líkt og kommúnisminn var í kalda stríðinu.
Tvær meginástæður eru fyrir falli alþjóðahyggjunnar. Í fyrsta lagi skilaði hún ekki öllum almenningi velmegun. Stórir hópar á vesturlöndum urðu útundan á meðan stórfyrirtæki og sívaxandi sérfræðistétt mökuðu krókinn.
Í öðru lagi strandaði alþjóðahyggjan í miðausturlöndum. Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 var tilraun til að alþjóðavæða þennan heimshluta. Markmiðið var að stofna til þjóðríkis alþjóðahyggjunnar, sem væri hlynnt vestrænni hugmyndafræði um hvernig þjóðríki ættu að haga sér - gefa frá sér fullveldið og njóta ávaxta frjálsra viðskipta. Írak skyldi vera fyrirmyndarríkið í menningarheimi araba og múslíma. En það fór á sama veg og með Rússland eftir fall Sovétríkjanna: upplausn, spilling og átök.
Svokölluð lýðræðisvæðing í Norður-Afríku og arabaríkjum um 2010, arabíska vorið, fór einnig út um þúfur. Menningarheimur múslíma er ekki tilbúinn í vestræna alþjóðahyggju.
Project Syndicate er efnisveita helstu talsmanna alþjóðavæðingar. Efnisveitan tekur saman stöðuna undir fyrirsögninni ,,Problems from hell". Nafngiftin er við hæfi og lýsir stöðu alþjóðahyggjunnar.
Þegar ráðandi hugmyndakerfi verður gjaldþrota er tímabil óvissu og átaka áður en nýtt kerfi festir sig í sessi. Umskiptin taka áratugi og eru ekki friðsöm. Eins og við blasir.
Margoft reynt að sameina Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Íslendingar virðast ætla að halda alþjóðavæðingunni áfram. Fundur í kvöld með innflytjendum í borgarráðshúsinu. Soros komin með puttanna í fjármálakerfið hér og síðast þá eru Forsetahjónin á fullu í Alþjóðavæðingu á opinberum fundum með öðrum þjóðum.Noreg í einu tilfelli.
Valdimar Samúelsson, 25.3.2017 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.