Miðvikudagur, 8. mars 2017
ESB-sinnar berjast fyrir málfrelsi sínu
Umræðan um ESB aðild Íslands er komin á það stig að ESB-sinnar eru í vörn fyrir málfrelsi sínu. Ekki vegna þess að neinn banni þeim umræðuna, orðið er frjáls bæði á alþingi og í samfélaginu.
Heldur vegna þess að málefnaleg staða þeirra sem vilja Ísland í Evrópusambandið er svo gjörtöpuð að þeir hafa ekkert fram að færa. Tvær ástæður eru fyrir vonlausri stöðu málstaðarins.
Í fyrsta lagi sýndi reynslan eftir hrun að Ísland komst úr kreppunni með fullveldið og krónuna að vopni. Í öðru lagi er Evrópusambandið í djúpri tilvistarkreppu. Mörg ár, ef ekki áratugir, líða áður en ljóst verður hvort og hvernig ESB lifir af tilvistarkreppuna.
Á meðan er betra að tala um eitthvað annað en ESB. Til dæmis um málfrelsi, - sem meðal annars er hægt að nota til að játa mistök.
Hafa málfrelsi í Evrópumálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er nýtt: Í stað þess að ESB sé að deyja nánast á morgun, stendur hér að það muni "taka ár ef ekki áratugi."
Ómar Ragnarsson, 8.3.2017 kl. 10:33
Það eru ætíð andstæðingar ESB vilja þagga niður í öllum sem ekki eru þeim sammála. Kemur lítið á óvart, enda talsvert einræðishyggja og aðdáun hjá hjá andstæðingum Evrópusambandsins. Enda margir hverjir af þeim leynt og ljóst ekkert nema fasistar með alræðiscomplexa á háu stigi.
Jón Frímann Jónsson, 8.3.2017 kl. 10:54
Jón Frímann ég var nú að vona að ESB hefði gleypt þig með húð og hári, en sé að sambandið er að spýta út hratinu. Bendi þér bara á að andstæðingar hafa ekkert reynt að ÞAGGA niður í ESB-sinnum. Það gerist bara sjálfkrafa þegar ESB rökin halda engu vatni og útkoman er upphrópanir um fasista eins og þú Telur við hæfi.
Ragnhildur Kolka, 8.3.2017 kl. 16:33
Já Ragnhildur það er vandinn við allar andskotans óværur að þegar við höldum að við séum lausar við þær fyrir fullt og allt þá skjóta þær oftar en ekki upp kollinum á nýjan leik öllum til ama.
kv.
Hrossabrestur, 8.3.2017 kl. 18:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.