Sunnudagur, 26. febrúar 2017
Ögmundarflokkurinn sameinar 3 stjórnmálaöfl
Stærsta stjórnmálaaflið utan alþingis er flokkurinn sem má kenna við Ögmund Jónasson, fyrrum þingmann Vinstri grænna. Ögmundarflokkurinn sameinar stóra hluta af þremur stjórnmálaflokkum: Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.
Staðfastir íhaldsmann eins og Halldór Jónsson taka undir með Ögmundarflokknum í stórum málum eins og hvort áfengi skuli selt í matvörubúðum og hvort innflutningur skuli leyfðir á smitsjúkdómum í kjöti.
Ögmundarflokkurinn er með alla burði til að verða stjórnmálaafl til höfuðs þeirri lausung og óreiðu sem tröllríður húsinu við Austurvöll.
Myndi auka líkur á smitsjúkdómum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
það er spurning hvort ekki sé tímabært að stofna þverpólitískan þjóðlegan flokk sem stendur vörð um Íslensk gildi gegn góða fólkinu, Ögmundur á örugglega heima í honum.
Hrossabrestur, 27.2.2017 kl. 20:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.