Sunnudagur, 5. febrúar 2017
Vinsælll fasisti í vondum heimi
Trump er vinsæll, annars væri hann ekki forseti. Fleiri Bandaríkjamenn styðja múslímabannið en eru á móti. Vinstriútgáfan Guardian birtir grein sem útskýrir vinsældir Trump.
Samkvæmt greininni er Trump vinsæll vegna þess að hann talar fyrir milljónir Bandaríkjamanna sem urðu útundan í alþjóðavæðingu síðustu áratuga. Elítan fitnaði eins og púkinn á fjósabitanum en almenningur var skilinn eftir í skítalífi lágra launa og eiturlyfja.
Styrmir Gunnarsson rekur samhengi uppreisnarinnar sem Trump leiðir og vísar í bandaríska stjórnmálaumræðu liðinna ára. Borðið var dekkað fyrir mann eins og Trump.
Andstæðingar Trump í elítunni og á fjölmiðlum reita hár sitt í örvæntingu yfir vinsældum forsetans. Nærtækara væri að grafast fyrir um ástæður vinsældanna. En það er miklu einfaldara að sýna Bandaríkjaforseta afhöfða Frelsisstyttuna.
Trump með höfuð Frelsisstyttunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Íslendingar ættu að skoða það sem er að gerast í þeirra nágrenni.
Það hlýtur að koma að því að fólk segir hingað og ekki lengra, eins og er að gerast hér í USA. Fólk er búið að fá alveg nóg af elítunni og óreiðu innflutning smála. Ungt fólk útskrifast úr dyrum háskólum en fá enga vinnu og verða að flytja inn á hótel mömmu eftir útskriftarathöfnina.
Ástæða vinsælda Trump's er að hann er að taka á málunum og elítan veitir mótspyrnu eins og þeir geta.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 5.2.2017 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.