Föstudagur, 20. janúar 2017
Trump drepur alþjóðahyggjuna
Alþjóðahyggju er, með réttu eða röngu, þökkuð að við búum í friðsamari heimi en lengst af í sögunni. Nýr Bandaríkjaforseti fékk embætti sitt út á harða gagnrýni á alþjóðahyggjuna.
Alþjóðahyggja er ráðandi í alþjóðapólitík frá seinna stríði og allsráðandi síðasta aldarfjórðunginn, eftir að kalda stríðinu lauk.
Ef Bandaríkin verða sterk á ný, eins og Trump boðar, verður aukinn styrkur þeirra á kostnað annarra ríkja og ríkjasambanda. Alþjóðahyggjunni var stefnt gegn þeirri hugsun að styrkur eins ríkis væri veikleiki annars. En sú hugsun er áberandi í samskiptum þjóða allt frá fimmtu öld fyrir Krist þegar Aþena og Sparta deildu um forystu í gríska menningarheiminum.
Evrópusambandið, Rússland og Kína eru meðal þeirra ríkja sem veikjast verði sterkari Bandaríkin að veruleika á forsendum einangrunarhyggju. Viðsjálir tímar eru framundan.
Hyggst sameina Bandaríkjamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.