Laugardagur, 26. nóvember 2016
Hugmyndafræði ber vísindi ofurliði
Viðurkennd aðferð til að skilja ferla í náttúrunni eru vísindi. Þau eru þó hvergi nærri óbrigðul og lúta eins og önnur mannanna verk að hluta órökvísri hugmyndafræði. Ein slík er hugmyndafræðin um áhrif manna á loftslagsbreytingar.
Ákveðnir þættir hugmyndafræðinnar eru staðfestir, s.s. hlýnun frá dögum iðnbyltingarinnar og óæskileg áhrif af brennslu jarðefnaeldsneytis. Kapp er best með forsjá en þar virkar hugmyndafræði á útþensluskeiði ekkert alltof vel. Augljósum mótrökum við ríkjandi hugmyndafræði, t.d. þeim að loftslag á jörðinni fór í gegnum breytingar löngu áður en áhrif mannsins komu til sögunnar, er sópað til hliðar.
Hugmyndafræðin um áhrif mannsins á loftslag snýst upp í hindurvitni en ekki vísindi þegar stórfelldar aðgerðir, eins og að breyta grónu landi í mýrar, er hrint í framkvæmd án vitneskjum um hvaða áhrif aðgerðirnar hafa.
![]() |
Vantar vísindin við endurheimt mýra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það skyldi þó aldrei vera að stjórnmálafólkið sem sem hangir á þessu sé ekkert annað en lýðskrumarar.
Hrossabrestur, 26.11.2016 kl. 16:00
Það má vel vera að maðurinn hafi áhrif á loftslag (nú er ekki lengur talað um hlýnun, þar sem erfitt er að finna henni stað s.l. 15 ár)
Spurningin er hvort aðgerðir til að sporna við þessari meintu þróun séu að virka eða séu sjálfbærar. Hingað til hefur lausnin þótt vera að skattleggja útblástur og meinta áhrifavalda án þess að það hafi önnur áhrif nema til rýrnandi kjara og efnahags.
Notkun ekdsneytis hefur ekkert minnkað,þvert á móti, bara orðið dýrari. Á meðan ekki er til hrein orka, sem kemur í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti, þá er þetta bara vegur til efnahagslegs sjálfsmorðs samfélaga.
Allar lausnir sem eru á yfirborðinu hreinar eru í raun að bæta við mengunina frekar en draga úr henni. Raforka, sem drífa á bíla t.d. er að mestu leyti fengin frá jarðefnabrennslu og framleiðsla þessara bíla er mengunarvaldur per se.
Það er ekkert plan B til. Heimurinn býr ekki við þann munað sem við höfum að fá megnið af orkunni úr jörðinni. Sú orka er heldur ekki endalaus.
Ég hef heyrt að kaldur samruni, sé nú að verða staðreynd eftir áratuga niðurrif og háð hagsmunaaðila. Menn vita ekki enn nákvæmlega hvað veldur umframorkunni, en hún er þarna. Erfitt hefur verið framanaf að endurtaka fyrirbærið svo eitthvað öryggi sé mælanlegt, en það breytist hratt og er árangurinn þar nú um 70-80%. Sumir segja að þróunin bendi til þess að þetta verði vænlegur og öruggur kostur innan 5-10 ára.
Ef þetta verður raunin, þá munu mörg efnahagskerfin riða til falls og röskunin katastrofal. Þessvegna er barist gegn þessu með oddi og egg.
Ég legg til að umhverfissinnar einbeiti orku sinn að því að því að knýja fram slíka valkosti og að peningar verði settir í að þróa og rannsaka vænlega orkukosti í stað þess að refsa fólki með sköttum sem safnast í feita sjóði alþjóðastofnana og banka sem vinna helst að því að viðhalda hinu gamla, þegar öllu er á botninn hvolft.
Staðreyndin er að í dag verður ekki dregið úr notknu jarðefnaeldsneytis án hnattræns efnahagshruns. Annað er bara hugsjónahjal rétthugsunarhænsna, sem hafa enga hugmynd um afleiðingar.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.11.2016 kl. 16:47
Merkilegt þegar rætt er um hnattræna hlýnun og loftslagsþvælusinnar vitna í vísindin, hvað þá vegna Íslands, þá er ekki rætt í tölum og tonnum, heldur áætlaðar prósentubreytingar í framtíðinni frá völdu ári fyrir okkar eigin íslensku iðnbyltingu. Á meðan öskrar raunveruleikinn á þau með okkar örfáu skip og bílana sem eru að verða nýir og sparneytnir. En magn og tími skipta víst engu máli, við ræðum um vatnsmagnið í drullupolli á meðan fljótið líður hjá.
Sólin sem öllu ræður og eldgosin skipta víst heldur ekki máli, heldur er almáttugur maður fær um að kæla heiminn ef hann vill. Að vísu tekur ferlið 50-500 ár í gegn um hringrás heimshafanna, en allt skal gert fyrir nanógráðuna sem allir Íslendingar myndu kæla heiminn (ef við vildum) með því að aka aldrei bíl framar. Spurðir um þetta þá segja aðgerðarsinnar að við verðum að sýna gott fordæmi, magnið sé ekki málið. Semsagt við tökum á okkur auknar byrðar og hjólum í storminum til þess að einhver út í heimi hrífist með og bæti ekki við kolaverum til þess að auka hagvöxt sinn.
Fyrirmyndarþjóðir eins og Noregur dæla upp olíu og gasi sem verður brennt. Síðan er reiknikúnstum beitt til þess að laga móralinn, sem þarf ekki einusinni að vera fyrir hendi.
Ekkert af þessu skiptir máli. Íslendingar ættu allir að fá sér jeppa sem hæfir breiddargráðunni og ríkið ætti ekki að leggja álögur á þá, heldur á stórhættulega örbíla sem útlendingar í fríi velta.
Ívar Pálsson, 26.11.2016 kl. 18:14
Veit vel, að menn vilja hugsa um sjálfan sig sem "almáttuga". Og af "guði" komnir, og telja sig "réttu syni Guðs". Svo maður taki nokkur vel útilátin orð úr skriftum.
En ef maðurinn er "ástæða" hlýnunar, er það þá sönnun fyrir því að "menn" séu á Mars?
Eða, hafið þið yfir höfuð ekki gert ykkur grein fyrir því, að "pólarnir" á Mars, eru líka að bráðna. Hliðstætt, við það sem er að gerast hér á jörð.
Nei, Páll ... þetta eru ekki vísindi. Heldur "trú", svona svipað og "Big Bang" ... maður vill trúa þessu, því það er miklu auðveldara heldur en að ransaka sannleika málsins, sem mun leiða í ljós að þessu klettur sem við búum á ... er lítið annað en hálur og þunnur ís, á vatni alheimsins ...
Ignorance, is bliss.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 26.11.2016 kl. 20:28
Það er sumum í mun að fólk trúi á svo kallaða hlýnun af manna völdum, í þeim tilgangi að geta haft stjórn á þjóðum, þá er ég að tala um Sameinuðu þjóðirnar og menn á þeirra vegum. Þeir vísindamenn sem voga sér að hafa aðra skoðun eru ofsóttir af elítunni og þeim gert lífið leitt.
Ég velti því fyrir mér hvað það var sem mennirnir gerðu sem olli því að ísöld hopaði.
Tómas Ibsen Halldórsson, 26.11.2016 kl. 22:05
Fjörtíu þúsund embættismenn sötruðu kampavín í París, gistu á góðum hótelum, allir á dagpeningum og ákváðu að Jörðin ætti ekki að hitna um meira en tvær gráður, á næstu árum.
Sennilega var allt að sex gráðum heitara, að meðaltali, þegar og um það bil sem Ísland byggðist. Göngum vel um umhverfið, sóðum ekki út, lágmörkum mengun, en fyrir allar sakir, ekki hlusta á heimsendaspámenn sem lifa á því að selja mengunarkvóta!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 27.11.2016 kl. 06:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.