Fimmtudagur, 20. október 2016
Benedikt og árásirnar á Bjarna Ben.
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar er í góðum tengslum við slúðurveitu Eiríks Jónssonar, sem mærði Benedikt líkt og launaður almannatengill með færslu 18. október. Degi síðar birtist á slúðurveitunni færsla um fjölskyldutengsl Bjarna Ben við starfsmann Seðlabankans sem er sekur um trúnaðarbrot.
Benedikt er hugleikið að eyðileggja trúverðugleika Bjarna Ben. Í málgagni Viðreisnar, Hringbraut, má lesa í beinu framhaldi af færslum Eiríks nafnlaus skrif sem bendla Bjarna Ben. við viðskiptapólitískt baktjaldamakk.
Nafnlaus höfundur pistilsins á Hringbraut er vel kunnugur viðskiptum og kann til verka að smíða samsæriskenningar.
Með frænda eins og Benedikt þarf Bjarni Ben. enga óvini.
Plantað fyrir kosningarnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og Benedikt þarf þjóðin svo sannarlega ekki. Benedikt er Trampe greifi nútímans.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 20.10.2016 kl. 22:20
Vill enginn skoða viðskiptasögu Benedikts Jóhannessonar. Þar kennir ýmissa grasa það maður heyrir.
Halldór Jónsson, 20.10.2016 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.