Ást, hatur og brandarar í múslímatrú

Róttækir ungir múslímar, sem hyggja á hryðjuverk, þurfa ást, skrifar Omer Aziz í New Republic. Hann vísar í fjölda ungra manna sem á síðustu árum drápu saklausa borgara á vesturlöndum í nafni múslímatrúar.

Í Svíþjóð er ást og velferð á háu stigi. BBC segir að frá Svíþjóð streymi hundruð ungra múslíma til að berjast fyrir múslímatrú.

Hamed Abdel-Samad er egypskur múslími menntaður í Þýskalandi. Í uppgjöri við múslímatrú skrifar hann í niðurlagi að ekki fyrr en múslímar getið hlegið að spámanninum og sagt um hann brandara geti þeir losnað við hatrið sem trúnni fylgir.

Erasmus frá Rotterdam ruddi brautina fyrir kímni og kaldhæðni í kristni, ásamt fræðimennsku í eingyðistrúnni frá Jerúsalem. Erasmus er 15. aldar maður og múslímar eiga engan slíkan þótt komin sé 21. öld. Enda finnst fjarska mörgum múslímum rétt og skylt að drepa hvern þann sem dregur dár að spámanninum frá Mekka. Ástin mun ekki vinna bug á skorti á kímnigáfu.

 


mbl.is Sprengiefnið tilbúið til notkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband