Miðvikudagur, 31. ágúst 2016
Fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs splundrast
Undir merkjum 365 miðla bjó Jón Ásgeir Jóhannesson til fjölmiðlaveldi sem gaf tóninn í dægurmálum fyrir hrun - og bar blak af útrásarkúltúr Jóns Ásgeirs og félaga. Eftir hrun er ekki sama flugið á 365 miðlum.
Viðskiptamódelið áskriftarsjónvarp, fjarskiptafyrirtæki og blaðaútgáfa gekk ekki upp. Sumpart vegna tæknibreytinga, tilkoma Netflix, en einnig vegna skorts á tiltrú á fjölmiðlum Jóns Ásgeirs sem takmörkuðu vaxtarmöguleika.
Nú er ákveðið að búta í sundur fjarskipti og ljósvakamiðla annars vegar og hins vegar blaðaútgáfu og netmiðlun.
Vodafone kaupir fjarskipta- og sjónvarpshlutann en blaðaútgáfan og netmiðlunin bíður annars kaupanda.
Jón Ásgeir stofnaði til fjölmiðlaveldis vegna viðskiptahagsmuna sem felast í dagskrárvaldi opinberrar umræðu. Hann mun ekki nenna að eiga fríblað og visir.is sem eru jaðarútgáfur og bíður eftir tilboði.
Kaupa ljós- og fjarskiptahluta 365 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.