Föstudagur, 26. ágúst 2016
Samfylking: málefnadauði, síðan fámennsidauði
Samfylkingin gerðist einsmálsflokkur ESB-sinna um miðjan síðasta áratug. ESB-umsókn Samfylkingar strandaði á skeri í tíð Jóhönnustjórnarinnar og þar með fór málefnið eina.
Einsmálsflokkur án málefna er ekki á vetur setjandi og það gildir um Samfylkinguna. Fólk gefur ekki málefnalegu þrotabúi gaum, eins og sést á væntanlegu prófkjöri í Norðvesturkjördæmi: þrír gefa kost á sér.
Saga Samfylkingar síðustu tíu árin er lexía um hvernig flokkar eiga ekki að haga sér í pólitík - vilji þeir eiga framtíð.
Aðeins þrír í framboði i í NV-kjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þrátt fyrir lexíuna með LANDRÁÐAFYLKINGUNA virðast Píratar ætla að róa á sömu mið. ÞEIR LEGGJA BARA ÁHERSLU Á NÝJA STJÓRNARSKRÁ og fólk virðist ætla að bíta á agnið. Annars vona ég að fólk sjái að sér í það minnsta er ég bjartsýnn á að landsmenn sjái að sér, þegar í kjörklefann er komið og annað komu úr kjörkössunum en hefur komið fram í skoðanakönnunum..........
Jóhann Elíasson, 26.8.2016 kl. 17:15
Nei, hér eru tveir góðir, annar, þá höfundur sem studdi við bann starfsmanna RÚV um að tjá sig á samfélagsmálunum og annar, Jóhann hinn lýðræðislegi, sá sem þolir lítt að aðrir séu honum ósammála, þá rífur í Jóhann og hann gerir þarfir sínar strax yfir viðkomandi.
Hér er greinilega gott að vera......
Sigfús Ómar Höskuldsson, 26.8.2016 kl. 18:25
Akkurat...einmitt rétti vettvangur þessa tveggja manna.
Friðrik Friðriksson, 26.8.2016 kl. 20:06
Eitthvað kemur þessi pistill við kaunin á ykkur Sigfús og Friðrik. Eruð þið kannski Samfylkingarmenn. :D
Jón Steinar Ragnarsson, 26.8.2016 kl. 20:15
Er ekki Sigfús Hörundsári mættur vælandi yfir því að ég skyldi loka á vitleysisbullið í honum og eins og vanalega hefur hann ekkert vitrænt fram að færa. Og svo er þessi kálfur (ég bið kálfana afsökunar á samanburðinum)hissa á að menn nenni ekki að leyfa svona vitleysingum að þvælast á síðunni.
Þeir eiga vel saman þessir tveir Sigfús og Friðrik, báðir álíka heilaskemmdir.
Jóhann Elíasson, 26.8.2016 kl. 20:19
Skiptir varla hvort menn séu hægri eða vinstri en hjá síðuhafa er allt saman RÚV að kenna að Sigmundur hrökklaðist frá völdum...endalaust tuðað á því.
Sem betur fer kaupir fólk ekki þetta frá Páli Vilhjálms.
Síðuhafi minnist aldrei á hrun framsókns...aldrei gert enda hentar það ekki hans málstað...hann ræðst á aðra og sparkar í og kennir þeim um.
Friðrik Friðriksson, 26.8.2016 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.