Föstudagur, 26. ágúst 2016
Skoski þjóðarflokkurinn á Bifröst
Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Viðskiptaráðs, Vilhjálmur Egilsson, boðar stofnun stjórnmálaflokks til höfuðs nýlendustefnu Reykjavíkur gegn landsbyggðinni.
Fyrirmynd Vilhjálms er skoski þjóðarflokkurinn er vill slíta Skotland frá Bretlandi. Tilefni þessara pólitísku tíðinda er að héraðsháskólinn á Bifröst, sem Vilhjálmur stýrir, fékk ekki lögregludeild á háskólastigi.
Lögreglunámið fór til háskólans á Akureyri. Samkvæmt Vilhjálmi er Akureyri þar með hluti af nýlenduvaldi höfuðborgarinnar. Þjóðflokkur Vilhjálms hlýtur að sækja í austur og vestur en ekki norður og niður. Í íslenskri pólitík er enginn munur á þessu tvennu.
Athugasemdir
En Það má líka sækja út og suður!
Helga Kristjánsdóttir, 27.8.2016 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.