Tyrkland löggildir barnaníð - múslímskur ósiður

12 ára tyrkneskar stúlkur eru gefnar eldri karlmönnum sem kynlífsleikföng, ,,ef þær samþykkja sjálfar." Tólf ára stúlkubarn er ekki í neinum færum að samþykkja ráðstöfun fjölskyldunnar á sér. Allir tólf ára eru börn og eiga tilkall til mannréttinda - en ekki í múslímaríkjum.

Danska útgáfan BT fjallar ítarlega um þetta sjúkdómseinkenni trúarmenningar múslíma að ráðstafa stúlkubörnum eins og búpeningi til hagsbóta fyrir fjölskylduna.

Yngsta eiginkona Múhameðs spámanns var níu ára þegar hann átti við hana samræði. Þaðan kemur fyrirmyndin. Miðaldaósiðir múslíma eiga ekki heima á vesturlöndum.


mbl.is Tyrkir ósáttir við Wallström
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Coming soon in your neighbourhood.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 15.8.2016 kl. 22:14

2 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þetta er ömurlegt, satt er það. OG mættu fleiri en Margot Walström mótmæla kröftuglega. Frjáslyndir Tyrkir þurfa á okkar stuðningi að halda. Þeir eru raunar líka múslimar, svo gagnrýni þín á alla múslima er ósanngjörn.

Skeggi Skaftason, 15.8.2016 kl. 22:57

3 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Hér er stjórnlagadómstóll þjóðar sem telur 80 milljónir, Skeggi, sem lögleiðir barnaníð og þú talar um að við eigum að styðja frjálslynda múslíma. Áttum við að styðja frjálslynda nasista á Hitlers-tímanum?

Páll Vilhjálmsson, 15.8.2016 kl. 23:01

4 Smámynd: Rödd skynseminnar

Nei Páll. En með sama hætti og sjálfsagt hefði verið að styðja frjálslynda ÞJÓÐVERJA á móti nasistum eigum við að styðja frjálslynda Tyrki í baráttunni gegn yfirgangi Erdogans og miðaldaviðhorfa.  Eða ertu ósammála því??

Rödd skynseminnar, 15.8.2016 kl. 23:40

5 Smámynd: Skeggi Skaftason

Sammála skynsemisröddinni.

Vissi satt að segja ekki að þú værir svo stækur islamofób að þú stimplaðir alla múslima sem ígildi nasista.

Annars er þessi úrskurður tyrkneska stjórnlagadómstólsins væntanlega kveðinn upp nú eftir að Erdogan rak helming allra dómara landsins.)

Skeggi Skaftason, 15.8.2016 kl. 23:54

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við þurfum að segja okkur úr Schengen án tafar, áður en 80 milljónir Tyrkja fá frjálsan aðgang að Íslandi.

Hættulega margir Tyrkir styðja ISIS.

Jón Valur Jensson, 16.8.2016 kl. 08:26

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Vissi ekki að það væru til frjálslyndir múslimar, það er ekkert í Heilögu Bók Íslam sem leifir frjálslyndi og til að vera múslimi þarf að fara eftir Heilögu Bók Íslam.

Þá er það spurningin, ef Tyrkir eru múslimar en fylgja ekki hinni Heilögu Bók Íslam, hvernig geta Tyrkir verið frjálsir múslimar?

Er þetta ekki bara eins í Tyrklandi og í Sádi Arabíu það er ekkert frjálslyndi   leift, af því að Heilaga Bók íslam leyfir það ekki.

Hvað segir þú um það Össur, fyrirgefið Skeggi heitir þú í dag?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 17.8.2016 kl. 04:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband