Mánudagur, 20. júní 2016
Ólafur Ragnar gagnrýnir Guðna Th.
Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi var einn af þeim sérfræðingum og álitsgjöfum sem vildu að Ísland samþykkti Icesave-samningana. Ólafur Ragnar Grímsson forseti rifjar upp stöðu mála þegar allt valt á einum manni - húsbóndanum á Bessastöðum:
að standa frammi fyrir því í ársbyrjun 2010 að ég yrði einn að taka ákvörðun um það í andstöðu við ríkisstjórnir í Evrópu, þingið og nánast alla sérfræðinga í landinu að vísa málinu til þjóðarinnar
Guðni Th. reynir að fela sporin sín í Icesave-umræðunni, eins og Viðskiptablaðið rekur.
Á Bessastöðum þarf að vera maður sem ekki er fangi vina sinna og félaga, heldur maður sem rís undir álaginu sem fylgir því að standa einn vaktina.
Kýs ekki í forsetakosningunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.