Sunnudagur, 19. júní 2016
Hálft Bretland í ESB, kannski allt út
Bretar eru aðeins að hálfu leyti í Evrópusambandinu. Þeir sögðu nei takk við evru um aldamótin, sem knýr samruna ESB síðustu 15 árin og eru ekki í Schengen.
Um helmingur Breta vill algjörlega skera á tengslin við ESB þótt þau séu töluvert minni en full aðild gerir ráð fyrir.
Ef Bretar jánka áframhaldandi aðild er það aðeins með hálfum hug. Hvernig sem Brexit-atkvæðagreiðslan fer þá tapar ESB.
Kossakeðja til stuðnings ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er þetta ekki bara kveðjukossinn,? Ef flestir setja krossinn fyrir framan Brexit.
Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2016 kl. 19:34
Má vera að uppsveiflan sem verið hefur allan þennan mánuð fyrir BREXIT sé nú fyrir bí eftir morðið á þingmanninum. Tilfinningalíf kjósenda ræður miklu um úrslitin.
Ragnhildur Kolka, 19.6.2016 kl. 20:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.