Fimmtudagur, 16. júní 2016
Guðni Th. er talsmaður vonlausa Íslands
Forsetaframbjóðandinn Guðni Th. Jóhannesson er talsmaður vonleysis eftirhrunsins. Hann vildi samþykkja Icesave-samningana, gerði lítið úr fullveldinu með því að kalla það ,,teyjanlegt hugtak" og studdi kröfuna um að stjórnarskránni yrði kollvarpað, eins og kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
ESB-sinnar úr röðum Samfylkingar og Viðreisnar styðja framboð Guðna Th. opinberlega. Greining á fylgi Guðna Th. sýnir að hann fær síst stuðning kjósenda þeirra flokka sem einarðastir eru á móti ESB-aðild, þ.e Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Pólitískar yfirlýsingar Guðna Th. eru til þess fallnar að draga kjarkinn úr þjóðinni og framlengja vonleysi eftirhrunsins.
Guðni með 51% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er einmitt athyglisverðast hversu sterkur Guðni er meðal kjóisenda Sjálfstæðis og Framsóknarflokks. Það að báðir kjósendur Samfylkingar ætli að kjósa Guðna segir ekki mikið.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 16.6.2016 kl. 09:07
SHM
Enn leggur þú lykkju á leið þína til að hafa rangt fyrir þér. Ósköp fyrirsjánlegt ávallt af þér.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.6.2016 kl. 10:46
Minnsta þjóðríki Evrópuálfunnar í einstaklingum talið,býr yfir hæfileikum sem leiðir þá alltaf að rétta krossinum á kjörseðlinum.- Eigum við að hressa upp á minnið? Nei horfum bjartsýn fram á veginn,á landsliðin okkar áfram Ísland.
Helga Kristjánsdóttir, 16.6.2016 kl. 14:06
Guðni er höfundur Hrunsins(bókini). Sumir eru raunverulegir höfundar hrunsins, en það er í lagi að mati Páls og JVJ(predikara með meiru), sem dulbýst á ýmsan hátt.
Jónas Ómar Snorrason, 16.6.2016 kl. 15:59
Fyndið að þið Davíðsmenn séuð ekki að fatta að þessi málflutningur virkar ekki, nema þá kannski þveröfugt
Jón Bjarni, 16.6.2016 kl. 19:27
Skrattinn dulbjó sig á margan hátt (ekki taka bókstaflega). Sumir virðast óska eftir vammlausum Forseta, horfa til flísinar í auga sumra, en sjá ekki bjálkan í eigin auga.
Jónas Ómar Snorrason, 16.6.2016 kl. 22:00
Einn daginn mun JVJ byrtast í skötulíki!
Jónas Ómar Snorrason, 17.6.2016 kl. 08:32
JÓS
Einn daginn munt þú læra stafsetningu og gott málfar jafnvel? Spurning hvenær þú ferð að hafa rétt fyrir þér og segja sannleikann eins og hann er?
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 20.6.2016 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.