Fimmtudagur, 19. maí 2016
Brotin samstaða um eftirstríðslýðræði
Fyrrum Bandaríkjaforseti, Bill Clinton, móðgar leiðtoga Póllands og Ungverjalands með því að líkja þeim við Donald Trump, sem keppir við eiginkonu Bill um að verða næsti forseti Bandaríkjanna.
Móðgun Clinton vekur athygli á að samstaðan um vestrænt eftirstríðslýðræði er að hverfa. Eftirstríðslýðræði fól í sér evrópsk-bandaríska fyrirmynd um að þjóðir heims kysu sér frjálslynda stjórnmálamenn sem um það bil væru sömu skoðunar um þróun mála, hvort heldur innanlands eða á alþjóðavísu. Seinni heimsstyrjöld lagði forsendurnar fyrir þessa tegund lýðræðis.
Kommúnistaríkin í Austur-Evrópu, með Sovétríkin sem æðsta yfirvald, voru ógnin sem hélt saman eftirstríðslýðræðinu.
Fyrst eftir hrun Sovétríkjanna virtist sem vestræna útgáfan af lýðræði myndi sigra í Austur-Evrópu. Fjölflokkakerfi og frjálslyndir stjórnmálamenn réðu dagskrá stjórnmálanna.
Brestir í vestrænni lýðræðishugsjón komu fyrst fram á vesturlöndum sjálfum. Sameiginlegt verkefni Vestur-Evrópuríkja, Evrópusambandið, sýndi æ sterkari tilhneigingu að sniðganga lýðræðið, t.d. með því að taka í gildi stjórnarskrá sem kjósendur í Frakklandi og Hollandi höfnuðu. Írar voru látnir kjósa tvisvar um embættismannastjórnarskrá Brussel, þegar þeir kusu ,,rangt" í fyrra skiptið - samkvæmt skilgreiningu embættismanna í Brussel.
Eitt meginstef vestræns eftirstríðslýðræðis var samstaða vestrænna þjóða í alþjóðamálum. Eftir árás múslímskra hryðjuverkamanna á Bandaríkin 11. september 2011 var búin til afsökun að herja á miðausturlönd. Írakstríðið 2003, sem Bandaríkin bera höfuðábyrgð á, hleypti öllu í bál og brand í heimshlutanum.
Milljónir múslíma sem flýja miðausturlönd knýja dyra í Vestur-Evrópu, sem reynir að beina hluta flóttamannastraumsins til Austur-Evrópu. Þar á bæ velja kjósendur sér stjórnlynda leiðtoga sem neita múslímum viðtöku með þeim rökum að þeir aðlagist ekki.
Donald Trump, Frauke Petry í Þýskalandi og Marine Le Pen í Frakklandi tóna sjónarmið í andstöðu viðtekinna hugmynda um umburðarlynt lýðræði. Þessi tegund stjórnmálamanna er þegar komin til valda í Ungverjalandi og Póllandi.
Umburðarlynt vestrænt eftirstríðslýðræði tapaði áttum í Brussel og Washington. Stjórnlynt lýðræði tekur sviðið. Alþjóðleg einkenni þess má merkja af því að Bill Clinton gat notað samlanda sinn, Donald Trump, til að móðga Jaroslaw Kaczynski í Póllandi og Viktor Orban í Ungverjalandi.
Bill Clinton leiti sér hjálpar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.