Þriðjudagur, 10. maí 2016
Ættfærsla peninganna - pólitískar afleiðingar
Til skamms tíma voru nótulaus viðskipti helsta form skattsvika hér á landi. Af umfangi Íslendinga í Panama-skjölunum að dæma eru nótulaus viðskipti barnahjal í samanburði við stórkostlega fjármuni sem fólk mælt á íslenska tungu geymir í aflandi.
Pólitískar afleiðingar af uppljóstrunum Panama-skjalanna er þegar orðnar all nokkrar. Í valnum liggja forseti, forsætisráðherra, borgarfulltrúi, framkvæmdastjóri stjórnmálaflokks og trymbillinn sem var gjaldkeri Samfylkingar.
Horft fram á veginn verður erfiðara fyrir fólk með mikla peninga í kringum sig að sækjast eftir pólitískum áhrifastöðum. Það fólk verður grunað um óheilindi, þótt ,,sökin" sé ein að eiga rúm fjárráð.
400 leitir á sekúndu í gærkvöldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er það satt sem fjármálaráðherra sagði í viðtali á sunnudaginn, að Alþingi hafi sett ákvæði inn í skattalög um hversu fara bæri með eignir í aflandsfélögum? Þ. e. hvernig gerði yrði grein fyrir þeim á skattaframtali.
Ærið eru þeir þingmenn þá minnislausir sem býsnast yfir því að nokkur maður finnist á landinu sem starfar eftir þessum ákvæðum!
Flosi Kristjánsson, 10.5.2016 kl. 14:25
Eitt af útfyllanlegum eyðublöðum sem RSK býður uppá er "Umsókn um kennitölu fyrir CFC félag" þ.e. aflandsfélag. Auk þess auðvitað að í framhaldi af því er hægt að skila skattframtal rafrænt fyrir slíkt félag.
Kolbrún Hilmars, 10.5.2016 kl. 15:01
Já hví er verið að ráðast á fólk fyrir að 'vera í Panamaskjölunum'? Hvar er hinn mikli glæpur? Forseti Panama sagði sjálfur opinberlega að Panama væri bara ekkert skattaskjól. Og af hverju hætti Sigmundur?
Elle_, 10.5.2016 kl. 18:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.