Þriðjudagur, 3. maí 2016
Fordómar í Samfylkingunni
Flokksfélagar Helga Hjörvar í Samfylkingunni vilja sumir hverjir hann ekki sem formann vegna fötlunar. Helgi sér illa og mun það notað gegn honum í kosningabaráttu um formennsku í örflokknum.
Samfylkingin gefur sig út fyrir að vera frjálslynt afl. Fordómar, af því tagi sem Helgi segir í flokknum, vekja ekki samúð - miklu frekar andstyggð.
En það er einmitt tilfinningin sem margir höfðu fyrir Samfylkingunni, áður þessar fréttir bárust.
Helgi Hjörvar finnur fyrir fordómum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ótrúleg þröngsýni og móðgandi eftir allt sem hann hefur gefið Samfylkingunni. Nafni minn:
Aðdáun er ekki léð
ef allt þú gefur
sumir geta aldrei séð
hve sært þig hefur.
Helga Kristjánsdóttir, 3.5.2016 kl. 23:17
Er "Góða Fólkið" nú farið að leggja "Góða Fólkið" í einelti? Er kannski "fötlun" (hvaða nafni sem hún nefnist) ekki gjaldgeng í "fjölmenningarsamfélaginu"? Voru það ekki NASISTAR Hitlers, sem svona unnu?
Jóhann Elíasson, 4.5.2016 kl. 07:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.