Miðvikudagur, 30. mars 2016
Græðir á Íslandi, greiðir lága skatta í Lúx
Vilhjálmur Þorsteinsson gjaldkeri Samfylkingar stundar atvinnustarfsemi á Íslandi en sækir í skattaskjólið í Lúxembúrg, sem Jean-Claude Juncker framkvæmdastjóri ESB bjó til handa auðmönnum.
Ólíkt ráðherrum ríkisstjórnarinnar stundar Vilhjálmur atvinnustarfsemi hér á landi. Arðurinn er skattlagður í Lúx og kemur ekki til samneyslunnar hér á landi.
Skattaskjólið í Lúxembúrg er skálkaskjól enda lágskattastefnan, sem Juncker bjó til, handa auðmönnum í ESB-ríkjum sem öðrum.
Aflandsfélagið ekkert leyndarmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Talsverður munur þarna á, annar er gjaldkeri i stjórnmálaflokki, hinn á að vera vinna fyrir okkur öll, þó svo að hann virðist einungis vinna fyrir suma, sem Forsætisráðherra.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 30.3.2016 kl. 12:56
Nei sko! Páll Vilhjálmsson gagnrýnir aflandsfélög!
Af því nú er það Samfylkingarmaður sem á aflandsfélagið!
Þú ert svo fyrirsjáanlegur Páll.
Skeggi Skaftason, 30.3.2016 kl. 13:00
Það ert þú einnig dr. Össur, mun fyrirsjánlegri en Páll. Páll er þó málefnalegur og rökfastur á meðan þú ert meðvirkur bullinu í meðlimum Einsmálslandráðafylkingar hinnar björtu framtíðar með vinstri grænu slagsíðuna!
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.3.2016 kl. 13:24
Hvað kalla stýran,Páll, á Framsoknarstöðinni Útvarpi Sögu, sem þú færð að fylla uppí dagskrarliði i samtölum við bóndann á Sögunni, um þa sem skrifa undir nafnleynd ? Hefur þu ekki gagnrýnt það sjálfur?
......en svo man eg, þu svarar bara sumum, eins aðrir Framsóknarvinir....
Sigfús Ómar Höskuldsson, 30.3.2016 kl. 13:36
Ó sískrifandi séra kakólikjör! Þú ert líka krúttbangsi
Skeggi Skaftason, 30.3.2016 kl. 13:56
Minni á að viðkomandi maður er ekki stjórnmálamaður. Hvorki í ríkisstjórn né á Alþingi eða borgarstjórn. Hann er gjaldkeri Samfylkingainnar. Það hefur verið á allra vitorði að hann og faðir Sigmundar Davíðs ásamt Erni Karlssyni eiga félög í Lux. Hann reynar bendir á að hann greiðir hærri fjármagnsskatt í Lux en hér eima og eins má benda á að það hefur verið tvísköttunarsamningur við Luxemburg frá 2001. 2012 mátti sjá fréttir um þetta í fjölmiðlum.
Þannig segir í viðskiptablaðinu 10. sept. 2012:
"Fjárfestingarfélagið Teton er í eigu fjárfestanna Vilhjálms Þorsteinssonar, stjórnarformanns CCP og fulltrúa í stjórnlagaráði, og Arnar Karlssonar, sem eiga sinn hvorn 40% hlutinn, og Gunnlaugs Sigmundssonar, fyrrverandi þingmanns Framsóknarflokksins, sem á 20%. Hlutur þeirra er skráður á þrjú eignarhaldsfélög sem öll eru skráð í Lúxemborg.. "
Magnús Helgi Björgvinsson, 30.3.2016 kl. 17:20
Svo skiptir það nú líka máli að maðurinn hefur talað fyrir því að við göngum inn í ESB og tökum upp aðra mynt svo það skipti ekki máli hvar hann er með peningana sína
Jón Bjarni, 30.3.2016 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.