Miðvikudagur, 30. mars 2016
Kári verði formaður Samfylkingar
Kári Stefánsson er eins og sniðinn fyrir formennsku í Samfylkingunni. Líkt og vinstrimenn almenn er hann með skýra og afgerandi stefnu í útgjaldamálum en er loðinn og óskýr um tekjuhliðina.
Allir formenn Samfylkingar, nema Jóhanna Sig., eru með rætur í Alþýðubandalaginu. Kári líka, hann er sonur þingmanns Alþýðubandalagsins.
Kári sýndi í páskavikunni fimi í meðferð landráðahugtaksins, löngum sérgrein allaballa, og toppaði þar dóttur fyrrumm formanns Alþýðubandalagsins.
Miðað við fylgi á Samfylking ekki efni á formanni í fullu starfi. Kári gæti séð um formennskuna meðfram öðrum störfum.
Fjórir vilja leiða Samfylkinguna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.