Laugardagur, 26. mars 2016
Brynjar: ekki vanhæfi. RÚV: jú víst, Svandís segir það
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins varð að skrifa bloggfærslu í gær til að bera af sér afflutning RÚV í hádegisfréttum þar sem Brynjar var aðalheimildin.
Í bloggfærslunni gefur Brynjar lítið fyrir umræðu RÚV um vanhæfi forsætisráðherra.
Mér finnst hins vegar afar langsóttar kenningar um vanhæfi ráðherrans. Þá er ekki hægt að halda því fram að ráðherrann hafi misfarið með vald í framgöngu sinni gagnvart slitabúunum, hvað þá að aðrir hagsmunir hafi ráðið en almannahagsmunir, sem er auðvitað aðalatriðið.
Brynjar birti pistil sinn síðdegis í gær. RÚV minntist ekki einu orði á afdráttarlausa afstöðu Brynjars, sem þó hafði verið aðalheimild hádegisfrétta RÚV. Svandís Svavarsdóttir þingmaður Vinstri grænna var á hinn bóginn kölluð til vitnis um að forsætisráðherra grafi undan efnahagslegu fullveldi Íslands.
Þessi kostulega frétt var sú fyrsta í fréttum RÚV í gærkvöld. Enginn annar fjölmiðill á Íslandi, og ekki einu sinni stórkarlalegustu bloggarar landsins, hafa kveikt á stóra sannleik RÚV og Svandísar: efnahagslegt fullveldi Íslands er í hættu vegna þess að eiginkona forsætisráðherra á bankareikning í útlöndum.
Athugasemdir
Þessi absúrd farsi sem RÚV setur á svið er brjóstumkennanlegur. Öll stjórnarandstaðan í beinni í hverjum einasta fréttatíma og nú er akureyrskur allaballi sóttur til að styrkja stöðuna. Í Vikulokin lét ekki sitt eftir liggja og hneykslaðist á því að forsætisráðherra tali ekki við höfuðkirkju fréttaflutnings, RÚV, en leggist svo lágt að ræða við keppinautinn Fréttablaðið og bíti svo höfuðið af skömminni með því að ræða við Útvarp Sögu "of all things".
og nú þessi yfirlýsing Svandísar - alger rjómabolla.
Ragnhildur Kolka, 26.3.2016 kl. 13:34
Hef ekki fylgst náið með þessu máli. En mikið er ég oft ánægður með málflutning Ragnhildar Kolka, en yfirburða dugnaður við sjálfsniðurlægingu verður hvorki frá Svandísi Svavars né Jóni Inga tekinn.
En þau ætu að vera sátt og lukkuleg með að við þessi sem höldum uppi málgagninu handa þeim látum kyrrt liggja.
Hrólfur Þ Hraundal, 26.3.2016 kl. 15:02
Það er ég líka og vantar svo oft tilfinnanlega tákn sem túlkar það.
Helga Kristjánsdóttir, 26.3.2016 kl. 17:35
Var einhver að ræða í alvöru við Jón Inga "of all things"?
Elle_, 26.3.2016 kl. 18:59
Getur ekki einhver bent þessum Rúvurum og eineltisflokkum á, að 7,8% fylgi þeirra eykst ekki hætishót þótt þeir klifi á þessu gervimáli sínu út í það óendanlega?
En Svandís Svavarsdóttir, sem kaus af mestu ánægju með hundraða milljarða Icesave-samningum snillingsins hans pabba síns, segir nú "efnahagslegt fullveldi Íslands í hættu" vegna þess að eiginkona Sigmundar Davíðs á 800 milljónir á bankareikningi í útlöndum. Þvílík glöggskyggni, þvílík dómsdags-spámennska!
Jón Valur Jensson, 26.3.2016 kl. 19:54
Elle mín mig langar að spyrja hver Jón Ingi er? Hef minni tíma nú um stundarsakir.
Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2016 kl. 02:50
Helga hann var í litla flokkinum sem hætti í stjórnmálum.
Elle_, 27.3.2016 kl. 10:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.