Mánudagur, 8. febrúar 2016
Sterkir leiðtogar þegar miðjan hrynur
Pólitíska miðjan er hrunin, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Sterkir leiðtogar fylla upp í tómarúmið sem miðjan skilur eftir sig. Vangeta stjórnmálaelítunnar að mæta áhyggjum almennings um aukna misskiptingu auðs og múslímavæðingar er meginástæða hruns miðjunnar.
Jacek Rostowski, fyrrum utanríkisráherra Póllands, skrifar um eftirspurnina eftir sterkum leiðtogum. Í Aftenposten er samantekt um efnahagslegar og pólitískar forsendur sterkra leiðtoga.
María Le Pen leiðtogi Front National er ein útgáfa af þessum sterku leiðtogum. Hótanir múslímskra hryðjuverkasamtaka gera ekki annað en að auka eftirspurnin í Frakklandi eftir Maríu, en fyrirmynd hennar er Jóhanna af Örk - annar sterkur leiðtogi sem franska þjóðin lyfti á stall á tvísýnum tímum.
Front National helsta skotmark Ríkis íslams | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.