Þriðjudagur, 26. janúar 2016
Valdefling Kára þýðir veikara stjórnkerfi
Kári Stefánsson er ígildi stjórnmálahreyfingar. Með eins-máls-undirskriftarsöfnun hyggst hann breyta heilbrigðiskerfinu.
Ekkert eitt átak mun breyta heilbrigðiskerfinu. Löngu eftir að undirskriftarsöfnuninni lýkur, og Kári gleymdur, verður rætt um fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar og tekist á um opinbert fé hvað skuli gert með það.
Nái Kári árangri með erfiði sínu verður það á kostnað stjórnfestu með því að viðurkennd stjórntæki, alþingi og stjórnarráð, eru sniðgengin. Fordæmi eru komin fyrir einsmálshreyfingum sem lýsa frati á þekktar aðferðir til málamiðlunar. Lýðveldið okkar verður ekki betra heldur eykst sundurþykkjan.
Veikra stjórnkerfi og orðræða á borð við ,,forsætisráðherra er fýldur út í allt og alla" er líklega ekki tilgangur Kára. Vegurinn til vítis er varðaður góðum áformum.
Forsætisráðherra fýldur út í alla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála
Gunnar Th. Gunnarsson, 26.1.2016 kl. 16:07
Ertu alveg að ganga fram af þér Páll. Með eins-máls-undirskriftarsöfnun, hefur einhver undirskriftarsöfnun verið um mörg mál hingað til????? Í þínum framsóknarsinnaða huga, þá virðist skipta máli, hvort elítan styðji eða ekki. þar kristallast þín skoðun.
Jónas Ómar Snorrason, 26.1.2016 kl. 17:24
Með fullri virðingu fyrir þínu - og þinna heilsufari- hefur þú þurft AÐ FARA Í GAGNSLAUS RÖNTGENTÆKI LANDSPÍTALA ALRRA LANDSMANNA - OG VERA MEÐ DAUÐADÆMT ungmenni /FÓLK ÞAR VEGNA ÞESS AÐ PENINGUNUM ER BETUR VARIÐ Í ANNAÐ ???
Erla Magna Alexandersdóttir, 26.1.2016 kl. 20:34
SVAR ÓSKAST !
FÓLK VERÐUR AÐ VITA UM HVAÐ ÞAÐ ER AÐ TALA.
Erla Magna Alexandersdóttir, 26.1.2016 kl. 21:36
Sumir hafa ekki aðgang að réttlætanlegri og löglegri jafnréttis-heilbrigðisþjónustu hér á landi, vegna fordæmandi fyrirskipana yfirlæknis ákveðinnar stofnunar hér á höfuðborgarsvæðinu.
Kári Stefánsson er víst í nokkuð góðu símavina-sambandi við þann skottulæknandi, fordæmandi, og sjúklinga-svíkjandi yfirlækni, eftir því sem best var skilið á honum í einhverju fjölmiðlaviðtalinu nýlega.
Sumir komast semsagt ekki einu sinni að aftast á biðlistanum, vegna yfirlæknamafíunnar fordæmandi, vanrækjandi og fyrirskipandi?
Hvað finnst fólki um slíkt óvandað og tækifærissinnað mafíustjórnkerfi innan opinbera kerfisins heilbrigðis-yfirvaldsráðskandi?
Ég bið fólk að hugsa sig aðeins um, áður en það hendir sér á áróðursfordóma-vagn múgæsingar-yfirlæknanna, sem stýrt er af "íslenskri erfðargreiningu" sem er í eigu mafíudeildar Bandaríkjanna mest siðspillingarstýrðu!
Ég vorkenni Kára Stefánssyni, að vera óvart og allt í einu eftir Bandaríkjastýrðs bankafalls-ráns-hrun kominn í varnarlið USA-læknamafíunnar andlitlausu. Og alveg óviljandi orðinn talsmaður mafíunnar á Íslandi.
Guð hjálpi Kára blessuðum, því nú er hann enn einu sinni kominn á villigötu.
Vissulega verður fólk að vita um hvað það er að tala. Frá öllum hliðum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 27.1.2016 kl. 00:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.