Föstudagur, 1. janúar 2016
Lóðsinn úr hruni kveður, uppskriftin að næsta forseta
Ólafur Ragnar Grímsson lóðsaði þjóðina úr hruni. Bæði með beinum hætti, með því að vísa Icesave-lögum vinstristjórnar Jóhönnu Sig. í þjóðaratkvæði, og óbeinum hætti með varnaðarorðum gegn ESB-aðild og ótímabærri uppstokkun stjórnarskrárinnar.
Ólafur Ragnar Grímsson var ekki alla sína tíð réttur maður á réttum stað. En þegar á reyndi, í upplausninni eftir hrun, var Ólafur Ragnar þjóðinni ómetanlegur.
Ákvörðun Ólafs Ragnars að sækjast ekki eftir endurkjöri, þótt hann mætti vera öruggur með árangur, gerir val á næsta forseta einfaldara. Hver sem það verður mun viðkomandi ekki reyna að fara í skó Ólafs Ragnars. Það yrði einfaldlega hallærisútgáfa.
Uppskriftin að næsta forseta lýðveldisins er að hann sé Ekki-Ólafur Ragnar.
Býður sig ekki fram til endurkjörs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það bannar þó væntanlegum forseta ekki að hugsa rökrétt og framkvæma samkvæmt eigin sannfæringu, eða hvað?
Hrólfur Þ Hraundal, 2.1.2016 kl. 00:41
Tek undir orð Hrólfs Hraundal hér. Viðhorf Ólafs Ragnars í meginmálum hans tveggja síðustu kjörtímabila eru engan veginn á útleið. Honum ber allur heiður fyrir varðstöðu sína í þeim málum og varanlegan árangurinn.
Sízt er okkur þörf á ESB-meðvirkum og Samfylkingar-þjónandi frambjóðendum eins og Stefáni Jóni Hafstein eða Þóru Arnórsdóttur. Flokkur þeirra hefur ekki að ósekju hrapað úr 29,8% atkvæðafylgi í þingkosningum 2009 niður í 12,9% atkvæða í kosningunum 2013 og nýlega niður í tæplega 9% fylgi í skoðanakönnun!
Verk þeirra evrókratanna fylgja þeim; ástandið í Evrópusambandinu mælir svo sízt með því sjálfu. Ný andlit á ESB-meðvirk framboð til forsetakjörs eru jafn-fjarri langtíma-hagsmunum fullvalda þjóðar eins og að leggjast aftur marflöt fyrir yfirráðum Dana eða Norðmanna.
Jón Valur Jensson, 2.1.2016 kl. 01:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.