Þriðjudagur, 15. desember 2015
Björk leiði kosningabandalag Pírata og vinstriflokka
Píratar eru lykillinn að mögulegri vinstristjórn, segir Samfylkingar-Kjarninn í pólitískri fréttatilkynningu. Birgitta Jónsdóttir yrði á hinn bóginn kosningafæla og gæti ekki verið oddviti í slíku bandalagi.
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna er með það gegn sér að hún er hluti flokkanna sem þjóðin hafnaði í síðustu kosningum og ekki tekið í sátt síðan.
Björk Guðmundsdóttir gefur til kynna að hún sé tilkippileg í pólitík og gæti orðið utanþingssamnefnari Pírata og vinstriflokka. Birgitta er einlægur aðdáandi Bjarkar og það er alltaf byrjun.
Gunnar Bragi frussaði í vandlætingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kannski Björk sé efni í stjórnmálakonu, því ekki getur hún sungið.
Aztec, 15.12.2015 kl. 18:51
Björk fer vel af stað samkvæmt vinstrivaðlinum með að uppnefna þá sem henni mislíkar við. Hún er augljóslega að stimpla sig inn.
Ragnhildur Kolka, 15.12.2015 kl. 19:33
Mér sýnist Björk vera efni í heilann stjórnmálaflokk ein og sér.
Tómas Ibsen Halldórsson, 15.12.2015 kl. 19:57
Páll. Athugasemdin mín þykir ekki merkileg við pistil þinn:
Nóttin geymir stjórnarandstöðuna best.
Hvers vegna?
Hvað stýrir "leyfilegri" og birtri réttlætis/lagahlýðni-kennd þeirra sem birta pistla á moggablogginu, og víðar?
Kannski hótanir, fjárkúganir og fleira á svipuðu siðleysisplani spilltrar stjórnsýslu, á öllum lögbrjótskerfishæðum æðstu embættis-sýslandi banka/lífeyrisræningja-þjóna? (meðvitaðra og ómeðvitaðra).
Björk?
Hvað er að þeim sem stjórna bak við svörtu tjöld heims-blekkingar-leikhúss-útibúsins skattabanka-sjóðarænandi á Íslandi og víðar?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.12.2015 kl. 23:36
Bendi á blogg thorsteinnhgunnarsson.blog. Greinilega ekki birtingarvinsæl athugasemd þar á ferð í dag. Eða hvað?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.12.2015 kl. 01:16
...og nú fauk Sigurður nokkur út af birtingar-vinsældarlistanum, um leið og ég skrifaði athugasemd?
Þetta er bara skoðanaleiðandi og ólýðræðislegt kerfisfjölmiðlastýrt stjórnsýslubull, sem ekki mun bæta neitt. Heldur þvert á móti brjóta niður allt og alla sem skapa siðað réttarríki.
Satt og logið sitt á hvað,
sönnu er verst að trúa.
Skáldið vissi hvað það söng!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.12.2015 kl. 02:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.