Fimmtudagur, 3. desember 2015
Ólafur Ragnar besti kosturinn
Ólafur Ragnar Grímsson er besti kosturinn í embætti forseta Íslands. Á meðan stjórnmálakerfið er í uppnámi, samanber fylgi Pírata, er æskilegt að búa við trygga forystu í æðsta embætti þjóðarinnar.
Ólafur Ragnar kann og veit; það sást í Icesave-deilunni, norðurslóðaumræðunni og varnaðarorðum hans um uppgang öfgatrúarmanna.
Starfsþrek Ólafs Ragnars er óskert og hann er maðurinn sem ætti að gæta Bessastaða næsta kjörtímabil.
Skorað á Ólaf Ragnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er semsagt engin Íslendingur sem getur gengt þessu embætti nema Ólafur. Þú segir að hann sé besti kosturinn þegar engin annar hefur gefið kost á sér í embættið. Ég hef svo sem ekkert á móti Ólafi en geri mér grein fyrir því að hann stuðar fullt af fólki og verður því varla þannig forseti að hann sameini þjóðina í einhverjum málum.
Baldinn, 3.12.2015 kl. 16:03
Mæl þú manna heilastur sem jafnan kæri Páll. Enginn augljós kostur er fyrir hendi miðað við þá umræðu sem farið hefur fram um aðra mögulega frambjóðendur í embættið.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 3.12.2015 kl. 16:36
Mér finnst vanta umræður um einhver FORGANGS-MÁLEFNI í þessa kosningabaráttu.
Langbest væri ef að allir forsetaframbjóðendur settu 3 stærstu baráttumálin sín einhversstaðar í rétta forgangsröðun á sínum kosninga-síðum.
Jón Þórhallsson, 3.12.2015 kl. 17:16
Eitt baráttumál Ólafs ætti að vera að koma á þjóðstjórn í landinu þar til skiptingu valds verði þjóðinni í hag og ekki eins og er núna með vald og auðlindir hjá fámennri klíku.
Eyjólfur Jónsson, 3.12.2015 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.