Laugardagur, 28. nóvember 2015
ESB, þúsund ára ríkið og lýðræði
Þúsund ára ríki Rómar hrundi á tímum þjóðflutninga, þegar germanskar þjóðir flæddu úr norðri og vestri til Suður-Evrópu. Rómverjar reyndu að stemma stigu við germanska áhlaupinu með bandalagi við sumar þjóðflutningaþjóðir - til að verjast öðrum.
Allt frá lýðveldisdögum Rómar var ríkisborgararéttur verðmæt gæði sem veittur var í skiptum fyrir tryggð og hollustu. Þeir flóttamenn sem koma til ESB-ríkja í dag fá ekki sam-evrópskan ríkisborgararétt heldur þýskan, franskan, sænskan og svo framvegis, - eftir viðtökulandi flóttamannanna.
Schengen-samstarfið leyfir flóttamönnum að ferðast á milli ESB-landa (Íslands líka en við aðilar að Schengen). Hryðjuverkamennirnir í París nýttu sér ferðafrelsið og áttu í samskiptum við félaga sína í Þýskalandi, segir Spiegel. Um tryggð og hollustu við megingildi ESB þarf ekki að ræða þegar múslímar eiga í hlut. Múslímsk menning gerir ekki mikið með jafnrétti, umburðalyndi og mannréttindi.
Þrátt fyrir táknræna stórmennsku ESB býr sambandið ekki yfir innviðum til að halda samfélagi gangandi. Þjóðríkin sjá um menntun, heilsugæslu, lögreglu og landvarnir þótt ESB njóti sameiginlegra landamæra og gjaldmiðils.
Til að mæta álaginu, sem flóttamönnum fyrir, verður ESB að koma sér upp sameiginlegum her og lögreglu, segir Hans-Werner Sinn, einn þekktasti evru-gagnrýnandinn í Þýskalandi. Sinn veltir fyrir sér hvort Ríki íslams muni gera ESB að sambandsríki.
Rauður þráður í pólitískri hugsun sterkra afla í Evrópu er að álfan þurfi miðstýringu til að halda friðinn innbyrðis. Bretland var togað inn í ESB á þessum forsendum.
Rómverjum tókst að halda saman ríki í þúsund ár. Seinni tilraun Evrópu til þúsund ára ríkis er kennd við austurrískan liðþjálfa í bæverska hernum, Adolf Hitler. Ríki hans stóð í tólf ár.
Lýðræðið er evrópskt fyrirbæri þróað síðustu tvær aldir. Rómverjar þekktu lítt til þess og Hitler fyrirleit það. Til að lýðræðið sé starfhæft þarf sameiginlegt tungumál og það finnst ekki í ESB. Ef ESB ætlar að halda velli mun það verða á kostnað lýðræðisins.
Óttast að ESB falli eins og Rómarveldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Islamistar felldu Rómaveldi samkvæmt vísindamanninum Dr Bill Warner sem skýrði það út í ystu æsar. Meðan þeir eyðilögðu kristnar kirkjur í þúsundatali og slátruðu kristnum mönnum. Islamistar vinna enn að þessu nú 14 alda stríði. Núna í vestrænum ríkjum meðan blindir stjórnmálamenn hjálpa þeim með kærleik og óvörðum landamærum.
Elle_, 28.11.2015 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.