Sunnudagur, 15. nóvember 2015
Múslímaárásir afhjúpa nekt Evrópumannsins
Fyrirmyndarfjölskylda embættismanna í Brussel er franskur maður kvæntur þýskri konu með þrjú þrítyngd börn og heimili í Hollandi. Evrópumaðurinn, samkvæmt Brussel-uppskriftinni, er ekki til nema í örlitlum mæli. Fjölskyldur í Evrópu eru flestar þjóðlegar.
Evrópusambandið boðar eitthvað sem heitir ,,evrópsk gildi" og jafnvel skilyrðir styrkveitingar til vísinda og lista að styrkþegar sýni fram slík gildi í verkum sínum. Á hinn bóginn eru ,,evrópsk gildi" fjarska yfirborðskennd, svo ekki sé meira sagt.
Tökum kristna trú sem dæmi. Evrópa var nær öll kristnuð árið 1000, en bæði Íslendigar í vestri og Ungverjar í austri miða kristnitökuna við það ár. Á þessum þúsund árum fór þannig fyrir kristni að hún klofnaði á 16. öld, með siðaskiptunum, og blóð flaut um alla álfuna í hálfa aðra öld vegna kristinna trúardeilna. Eftir frönsku byltinguna, fyrir 200 árum, var kristni skipulega úthýst af opinberum vettvangi og gerð að einkamáli hvers og eins. Máttugasta hugmyndafræði Evrópu á 20stu öld, marxismi, hataðist við kristni og trúarbrögð almennt.
Íbúar Evrópu eiga ekki sameiginleg gildi vegna þess að þeir eiga ekki sameiginlega tungu. Það er tungumálið sem varðveitir og fóstrar þjóðargildi. Evrópa á engan sameiginlegan almenning. ,,Höfuðborgin", Brussel, er í tilbúnu landi frá 1830 þar sem varanleg stjórnarkreppa ríkir enda tvær þjóðir fyrir á fleti, Vallónar og Flæmingjar.
Þegar múslímar gera árás á höfuðborg annars stærsta ríkis Evrópu rís upp alþjóðleg bylgja samúðar. Nágrannaríki bjóða fram aðstoð sína við að hafa uppi á árásarmönnunum. Af þessu skyldi ætla að áherslan yrði á sam-evrópskar aðgerðir gegn hryðjuverkum. En því er ekki að heilsa. Hvers vegna er ekki uppi hávær krafa um að ,,Evrópa" berjist gegn múslímskum hryðjuverkum?
Það er vegna þess að kerfin sem ,,Evrópa", þ.e. ESB, býr til eru misheppnuð. Gjaldmiðill ESB, evran, leggur efnahagskerfi þjóða í rúst. Schengen-kerfið, sameiginleg landamæri Evrópu, er gatasigti. Einn eða fleiri árásarmanna í París á föstudag komu til Frakklands í gegnum Grikkland, líklega sem flóttamenn.
Greining Maríu Le Pen, leiðtoga Þjóðarfylkingarinnar, að forsenda þjóðaröryggis er að Frakkar gæti eigin landamæra er blátt áfram óhrekjanleg staðreynd.
Evrópusambandið uppfyllir ekki lágmarkskröfur í þeim verkefnum sem sambandið tekur að sér. Árásir múslíma afhjúpa blekkinguna um ,,Evrópumanninn" sem ímyndað brusselfyrirbæri. Hvorki er ,,Evrópumaðurinn" til né það kerfi sem gæti veitt honum lágmarksvernd.
,,Evrópumaðurinn" á sér frumgerð í ,,Sovétmanninum" fyrir miðja síðustu öld. Í báðum tilfellum átti að búa til nýja manngerð úr hugmyndafræði. Skáldskapur af þessu tagi endar alltaf með ósköpum.
Ættingjar árásarmanns handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.