Föstudagur, 23. október 2015
Trump og Pútín elska múslíma
Donald Trump forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum segist elska múslíma þótt hann vilji loka moskum sem boða múslímska öfgatrú. Pútín forseti Rússlands er svo elskur að múslímum að hann sendir þúsundir manna og búnað fyrir milljarða að skakka leikinn í trúarátökum súnna og shíta í mið-austurlöndum.
Pútín tekur málstað shíta sem eru minnihlutahópur meðal múslíma þótt þeir séu meirihluti í öflugu ríki eins og Íran.
Öll þessi ást á múslímum dregur fjöður yfir þá staðreynd að innbyrðis átök múslíma snúast um túlkun á trúarsetningu. Helsti samjöfnuður við vestræna menningu er 30 ára stríðið á 17. öld þegar kaþólikkar og mótmælendur í ýmsum útgáfum drápu hvorir aðra vegna ólíks lesskilnings á heilagri ritningu.
Minni trú og meiri skynsemi er ráðlegging sögunnar til múslíma. En á meðan njóta þeir ástarjátninga Trump og Pútín, sem báðir elska múslíma, þó hvor á sína vísu.
Trump til í að loka moskum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.