Sunnudagur, 20. september 2015
Árni Páll: Samfylkingin verkfæri blogghersins
Bloggherinn sem myndar stemningu í samfélaginu í kringum meint dráp á hundinum Lúkas og önnur þjóðþrifamál er bandamaður Samfylkingar, segir Árni Páll Árnason formaður. Hann nefndi ekki bloggherinn á nafn en öllum má vera ljóst hvað hann á við með þessum orðum:
Ný stjórnmál þurfa nýja umgjörð og við eigum að gera tilraun til að skapa hana á grunni Samfylkingarinnar. Hér, eins og alls staðar annars staðar, spretta upp hreyfingar fólks til að berjast fyrir samfélagsumbótum. Flóttamenn. Makríllinn. Druslugangan. Reynslan frá hruni. Það skortir ekkert á vilja fólks til að leggja gott af mörkum. En hér, eins og um alla Evrópu, er fólk líka að átta sig á þeirri hættu að sjálfsprottnar hreyfingar verði til af miklu afli, en skorti úthaldið til að koma breytingum í höfn. Þær geti orðið eins og glæsileg flugeldasýning: Heillandi en endist alltof stutt til að knýja fram raunverulegar breytingar. Aftur og aftur höfum við séð sköpunarkraftinn, vonina og orkuna sem myndast þegar fólk hópast saman, en svo vantar tækið til að koma málum áfram. Afleiðingin verður vonbrigði og sundrung, vonleysi, biturleiki og uppgjöf.
Samfylkingin stendur ekki fyrir neitt annað en andóf og flugeldasýningar. Makríllinn, sem formaðurinn nefndi, er tákn um vel heppnaða aðgerð Samfylkingar, að lama störf alþingis sem ekki gat sett lög um makrílveiðar vegna málþófs Árna Páls og félaga.
Bloggherinn er annað orð yfir stjórnmál móðursýkinnar. Og það er ekkert nýtt að liðsmenn Samfylkingar gefi sig móðursýkinni á vald. Varaformaður flokksins notar orðbragð á alþingi sem fæstum dettur í hug að eigi þar heima. Borgarstjóri Samfylkingar gaf sig dómgreindarleysinu á vald þegar hann samþykkti viðskiptabann á Ísrael.
Nálgun Árna Páls er þessi: snúum veikleika okkar upp í stefnumál, förum alla leið með bloggherinn að bandamanni. Veðjum á að þjóðin kaupi flugeldastjórnmálin okkar.
Verði Samfylkingunni að góðu.
Tími til að borga reikninginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þarna er þeim rétt lýst. Samfylkingunni var svo gott sem sparkað út af þingi í síðustu kosningum. Hugsjóna fátækt þeirra gerir að verkum að þeir geta ekki nýtt sér tímann milli kosninga til að koma sér saman um málefni eða stefnu sem gætu laðað að kjósendur. Það eina sem ÁP dettur þa í hug er að halda áfram að ala á óánægju og úlfúð og vonast svo til að skjálfa engir kjósendur álpist til að setja krossinn við xS.
Ef Bjartri framtíð tekst að rétta af kúrsinn fyrir næstu kosningar, þá verður engin Samfylking á þingi næsta kjörtímabil.
Ragnhildur Kolka, 20.9.2015 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.