Miðvikudagur, 1. júlí 2015
Tíu aðgerðasinnar á Austurvelli - hvar er RÚV?
Tíu mótmælendur á Austurvelli og RÚV lætur ekki svo lítið að minnast á mótmælin. RÚV sem betlar til sín skylduframlög frá almenningi undir þeim formerkjum að stofnunin sinnir öryggishlutverki bregst almannahagsmunum illilega nú sem gjarnan áður.
Þegar aðeins tíu aðgerðasinnar mæta á mótmæli á Austurvelli, sem fjölmiðlar boða, þá er Ísland orðið öruggt fyrir atvinnumótmælendum. Upplausnaröflin láta undan síga, það er orðið friðsælla hér á landi.
RÚV lítur bersýnilega svo á að stofnunin eigi ekki að færa fréttir af öryggi landsmanna heldur aðeins auka á upplausn, ofstæki og hávaða með þar til gerðum fréttum þegar aðgerðasinnar véla nógu marga til mótmæla.
RÚV vinnur skipulega gegn allsherjarreglu í samfélaginu. Algerlega er út í hött að almannafé skuli fjármagna slíka starfsemi.
Mótmælendur og túristar á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvar er Ómar þegar þú skrifar á þennan veg klri Páll?
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 1.7.2015 kl. 23:41
Ómar er núna, klukkan rúmlega tólf, að horfa á forsíðu fréttavefjar RUV þar sem sagt er frá manninum með lúðurinn og félögum hans á áberandi hátt og meira að segja birt mynd.
Það heitir á máli Páls að RUV birti ekki fréttir á borð við þessa.
En ef farið verður að tillögunni um að leggja RUV niður mun svona frétt raunar ekki birtast framar.
Ómar Ragnarsson, 2.7.2015 kl. 00:12
Því miður hefur RÚV.misboðið okkur hægrisinnum lengst af á þessari öld.Betur að maður hefði hugkvæmst að taka þær upp og sýna.
Helga Kristjánsdóttir, 2.7.2015 kl. 02:30
"RÚV vinnur skipulega gegn allsherjarreglu í samfélaginu." Þetta er dásamlegt bull.
Wilhelm Emilsson, 2.7.2015 kl. 08:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.