Þriðjudagur, 26. maí 2015
Þýskaland-Frakkland gegn Bretlandi í ESB
Samstaða eykst í Bretlandi að þjóðin fái loksins að segja álit sitt á því hvort Bretland eigi heima í Evrópusambandinu.
Íhaldsflokkurinn vann kosningasigur með loforð um að semja upp á nýtt við Evrópusambandið um aðildarskilmála og leggja fyrir dóm þjóðarinnar spurning um hvort Bretland skuli eiga aðild að ESB eða ekki.
Fréttir í breskum fjölmiðlum herma að Frakkar og Þjóðverjar ætli að bindast nánari böndum innan núvernadi stjórnskipulags Evrópusambandsins.
Sáttmálinn er sagður löðrungur fyrir forsætisráðherra Breta sem mun ekki mæla með áframhaldandi veru Bretlands í ESB án þess að fá fram breytingar stjórnskipulagi ESB.
Styður nú þjóðaratkvæði um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.