Föstudagur, 24. apríl 2015
Lorca var drepinn af mönnum Franco
Spænska skáldið Federico García Lorca var tekið af lífi án dóms og laga í upphafi spænsku borgarastyrjaldarinnar. Leynd hefur verið um örlög Lorca en nú hafa opinber skjöl, sem tekin voru saman á sjöunda áratug aldarinnar, sýnt fram á að fasistar, sem hershöfðinginn Franco leiddi, handtóku Lorca og tóku af lífi.
Guardian birtir frásögn af gögnunum sem voru tekin saman af lögregluyfirvöldum í Granada á sínum tíma.
Lorca var höfundur leikritanna Blóðbrúðkaups og Hún Bernhörðu Alba. Hann var sósíalisti og studdi spænska lýðveldið sem fasistar steyptu.
Lengi var þráttað um kringumstæður þess að Lorca var drepinn og látið að því liggja að hann hafi fallið í átökum. Ævisagnaritari Lorca segir gögnin, sem nú liggja frammi, sýna svo ekki verði um villst að fasistar handtóku Lorca og myrtu.
Athugasemdir
Skóarakonan dæmalausa var eitt af leikverkum Lorca.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.4.2015 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.