Fimmtudagur, 26. mars 2015
Holuborgin afleiðing lífstílsstjórnmála
Vinstrimeirihlutinn í Reykjavík lætur inniviðina grotna niður. Í tvö kjörtímabil er gatnakerfi höfuðborgarinnar afgangsstærð vinstrimanna með þeim afleiðingum að göturnar stórskemma bíla fólks.
Áherslur vinstrimanna eru á sviði lífsstílsstjórnmála s.s. að meina börnum að kynnast kirkjulegu starfi og íbúakosningum þar sem innan við 5% íbúanna kjósa um hvort leikvöllur skuli málaður grænn eða rauður.
Undirstöðuþættir samfélagsins, til dæmis samgöngur, mæta afgangi í vinstristjórnsýslunni með fyrirsjáanlegum afleiðingum.
Verstu holur höfuðborgarsvæðisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Varla hægt að kalla stjórnunarhætti borgarstjórnarmeirihlutans í samgöngumálum annað en bjálfahátt. Í einhverskonar rósrauðri göngu og reiðhjólanostalgíuvímu hefur þessu fólki tekist að nánast gjöreyðileggja gatnakerfi borgarinnar. Bæði með viðhaldsleysi og fáránlegum framkvæmdum, sem hafa ekkert annað en óþarfa kostnað í för með sér.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 26.3.2015 kl. 13:24
Þá hljóta þeir vegir sem Vegagerðin sér um innan borgarinnar að vera í fullkomnu lagi fyrst þetta snýst um það hversu hræðilegir vinstri menn eru. Það er jú hægri stjórn sem ræður vegagerðinni, ekki satt?
Pétur Kristinsson, 26.3.2015 kl. 15:29
Pétur, fylgist þú ekki með???? Þegar Jón Gnarr var borgarstjóri, gerðu hann og Dagur B. samkomulag við Vegagerðina þess efnis að borgin fengi MILLJARÐ Á ÁRI NÆSTU TÍU ÁRIN gegn því að borgin tæki að sér viðhald þeirra gatna sem Vegagerðin hefði átt að sjá um. Við vitum ósköp vel hvernig ástandið á gatnakerfi borgarinnar er í dag. En það er hægt að "henda" 160 milljónum í að þrengja Grensásveginn......................
Jóhann Elíasson, 27.3.2015 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.