Fimmtudagur, 19. mars 2015
Pírata-RÚV framboð gegn Árna Páli
Fylgisaukning Pírata og fylgisstöðnun Samfylkingar er meginástæða framboðs Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur gegn Árna Páli Árnasyni sitjandi formanni. Fleira kemur þó til.
Sigríður Ingibjörg fékk einkaviðtal á RÚV um framboðið daginn fyrir landsfundinn til að kynna framboðið og munar um minna.
RÚV-arinn Egill Helgason var fyrstur til að hóta Árna Páli mótframboði Sigríðar Ingibjargar og nú gengur það eftir nánast í beinni útsendingu.
Snoturt hjá RÚV.
Býður sig fram gegn Árna Páli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heldur þú virkilega að þetta mótframboð verði til heilla Samfylkingunni?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2015 kl. 21:26
Ég veit það ekki, Ásthildur. Samfylkingin er í kreppu og eiginlega veit ég ekki hvort þeirra er minni örvænting.
Páll Vilhjálmsson, 19.3.2015 kl. 21:55
Nebb nákvæmlega.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2015 kl. 21:59
Sjálf sagði Sigríður Ingibjörg í Rúv-fréttum: já, að framboð hennar fæli í sér gagnrýni á Árna Pál, annars væri hún ekki að bjóða sig fram.
Er ekki einmitt fínt að fá hana í þetta til að jarða flokkinn? Skoðið reyndar ólíkt sjónarhorn Jóa Ragnars á það, bráðfyndinn þar eins og honum einum er lagið:
Til hvers að kjósa formann, essska, fyrst klíkan er búin að vera?
Jón Valur Jensson, 20.3.2015 kl. 00:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.