Föstudagur, 13. mars 2015
Píratar (22%) efast um Nato; gefa Sigmundi Davíð afmælisgjöf
Leiðtoga Pírata svelgdist á kvöldmatnum í gærkveldi og sagði í viðtali við mbl.is um afturköllun ESB-umsóknar
Þetta hlýtur í raun og veru að setja allar þingsályktanir um alþjóðasamninga í uppnám, þar á meðal og til dæmis ályktunina um að ganga í NATO.
Píratar mælast með næst mest fylgi stjórnmálaflokka, 22%, og eru þeirrar skoðunar að vafi leiki á stöðu Íslands í Nato, sem Ísland hefur tilheyrt frá 1949, eða í 66 ár, fyrst ESB umsóknin er afturkölluð.
En, bíðum við, stjórnmálaskýringar Birgittu pírataleiðtoga eru djúptækari en flestra dauðlegra manna. Í vísi.is birtist viðbótaranalísa frá konunni með svelginn
Þetta grefur undan þingræðinu og ég skil bara ekki hvernig þeim dettur í hug að gera þetta. Þetta er örugglega fertugsafmælisgjöf Sigmundar Davíðs, segir Birgitta.
Þjóð með stjórnmálaflokk eins og Pírata og leiðtoga með skopskyn Birgittu er ekki alls varnað.
Fólk hljóp bara frá kvöldmatnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er einhver mesta aðför að lýðræðinu sem átt hefur sér stað síðan við fengum okkar fullveldi,“ segir Birgitta Jónsdóttir
Ég myndi nú frekar segja að það hafi verið "einhver mesta aðför að lýðræðinu sem átt hefur sér stað síðan við fengum okkar fullveldi" þegar seinasta ríkisstjórn ákvað að fara í aðildarferlið án þess að huga að lýðræði, t.d. með því að spyrja þjóðina. Eftir því sem ég best veit þá kausa lýðræðið núverandi flokka einmitt einnig út af því að þeir eru á móti ESB aðild og því ætti þetta ekki að koma neinum á óvart.
Halldór Björgvin Jóhannsson, 13.3.2015 kl. 12:50
Forseti lýðveldisins gerir samninga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkisins, nema samþykki Alþingis komi til. En þar eð stjórnarskráin segir jafnframt að forsetinn láti ráðherra framkvæma vald sitt er það utanríkisráðherra í þessu tilfelli. Samningar við önnur ríki, gerð þeirra og framkvæmd er þannig á hendi utanríkisráðherra.
Einar Sveinn Hálfdánarson, 13.3.2015 kl. 13:51
Mjög athyglisvert þetta hérna,
„Það sem veldur mestum óróa hjá mér, alveg óháð því um hvað málið snýst, er að þarna er verið að sniðganga þingsályktun, þingið og sjálfan þjóðarviljann.
Ég mana bara ekki eftir því að hafa verið spurður um hvort ég
vildi ganga í þetta bandalag.
Eflaust á hún við, "þjóðarviljann" hjá þessum minnihluta
sem endalaust vill troða okkur þarna inn af okkur
forspurðum.
Í upphaif skal endinn skoða, en það var bara ekki gert,
og þetta er endirinn.
Sigurður Kristján Hjaltested, 13.3.2015 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.