Fimmtudagur, 26. febrúar 2015
Háskólamaður ákallar fjölmiðla; hvað með sjálfan þig, Jón?
Jón Ólafsson prófessor skorar á fjölmiðla að fjalla í auknum mæli um háskólasamfélagið og nefnir dæmi um verðug viðfangsefni.
Jón, sem býr að reynslu sem blaða- og fjölmiðlamaður, og er bæði starfs síns vegna og menntunar sérfróður um háskólasamfélagið, lætur sér ekki til hugar koma að sinna sjálfur fréttaflutningi af vettvangi háskólanna.
Á tímum bloggsins er sérhver tölvutengdur einstaklingur mögulegur fjölmiðill. Líkleg skýring á þessari yfirsjón Jóns er að samfélagshugmyndir hans eru aldraðar. Ein setning í grein Jóns hljómar svona:
Við búum í samfélagi þar sem ráðandi öfl vilja hafa fjölmiðlana veika.
Í samfélagi þar sem allir með aðgang að tölvu get verið fjölmiðlar er þessi setning dálítið út úr kú.
Hver eru annars ráðandi öfl á Íslandi? Eru háskólamenn eins og Jón valda- og áhrifalausir? Og ef svo er, hverjum er um að kenna öðrum en þeim sjálfum?
Athugasemdir
VILJA,VEIKA? Meinar þá að helstu málgögn andstæð ráðamönnum á hverjum tíma ættu að hafa hægt(þegja?)um sig. Eða kannski hann meini bara sjúk,eins og þegar mest gengur á.
Helga Kristjánsdóttir, 26.2.2015 kl. 14:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.