Föstudagur, 13. febrúar 2015
Auðmenn með feril úr Búnaðarbanka í Kaupþing
Kaupþingsmennirnir, sem fengu dóm í gær, eru ekki nýgræðingar í faginu. Einn stærsti eigandi Kaupþings, Ólafur Ólafsson, var aðalmaðurinn á bakvið kaup S-hópsins svokallaða á Búnaðarbankanum.
Þá átti að heita að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA væri aðili að kaupunum, en samkvæmt skýrslu alþingis var það til skrauts og engu haldbærari en viðskiptin við Al Thani síðar meir.
Auðmenn eins og Ólafur og félagar skópu þá ímynd að viðskipti þeirra væru hafin yfir lög og rétt. Dómur Hæstaréttar jarðar þá ímynd.
Mikilvægt að ekki skapist friðhelgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.