Mánudagur, 26. janúar 2015
Framsóknarflokkurinn er tromp þjóðarinnar
Þjóðin geymir sér fylgið við Framsóknarflokkinn og opinberar stuðning sinn ekki í könnunum heldur bíður með það til kosninga, líkt og gerðist í þingkosningunum 2013 og síðustu borgarstjórnarkosninga.
Könnun MMR sýnir að enginn stjórnmálaflokkur utan Sjálfstæðisflokkinn ná eyrum þjóðarinnar. Stjórnarandstaðan er stokkfreðin í fylgi og augljóst að almenningur telur engra tíðinda að vænta þaðan.
Framsóknarflokkurinn er kosningaflokkur sem tekur stóru stökkin í fylgisaukningu þegar mest ríður á; á kjördag.
Minni stuðningur við ríkisstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er að hluta til rétt, framsókn fær oftast meira í kosningum en könnunum en í borgarstjórnarkosningunum voru það rasistar sem hjálpuðu flokknum á síðustu metrunum eins og allir vita.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 26.1.2015 kl. 13:32
Þér sæmir ekki að skrifa svona,þetta kallast öfgaofstopi.Stelpurnr í Framsókn lögðu gríðarlega áherslu á að flugvellinum yrði ekki haggað og Moska ekki byggð á þegar úthlutaðri lóð,ég er alla vega sammála því.En ég las á Vísi fyrir nokkrum misserum að Salman Tamini kallaði Guðfinnu Nazista.
Helga Kristjánsdóttir, 26.1.2015 kl. 15:53
ætli það páll - framsókn kemst vonandi ekki upp með svona lygar aftur í bráð
Rafn Guðmundsson, 26.1.2015 kl. 17:35
Ef fólk styður Framsókn, hvers vegna ætti það að fela það í skoðanakönnun? Fyrir síðustu kosningar jókst fylgi Framsóknar jafn og þétt samkvæmt könnununm, þannig að það er ekki rétt að kjósendur opinberi ekki stuðning sinn í könnunum.
Er það ekki bara staðreynd að Framsóknarflokkurinn er ekki mjög vinsæll núna?
Wilhelm Emilsson, 26.1.2015 kl. 17:42
Þetta er djúp greining á núverandi ástandi.
Jón Ingi Cæsarsson, 27.1.2015 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.